Miðvikudagur, 01. Júní 2011 17:09

Kynning á landsmóti

Kynning verður á Landsmóti Bifhjólafólks 2011 á félagsfundinum í kvöld. Raftar verða á svæðinu og segja aðeins frá því hvað þeir ætla að gera skemmtilegt á Landsmótinu.

Kíkið við og fáið upplýsingarnar beint í æð. Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.

Birt í Sniglar
Föstudagur, 25. Júní 2010 20:06

V-Power Kynning

Shell býður til kynningar á 95 oktana V-Power bensíni klukkan 15:00 á sunnudaginn á Shell-stöðinni við Vesturlandsveg Einar Örn Ólafsson forstjóri setur opnunina. Joanne Swindells frá Shell Global solutions heldur 15 mínútna kynningu af sinni alkunnu snilld. Léttar veitingar og tónlist. Formúlu 1 keppni með veglegum verðlaunum fyrir bestu tímana.

Birt í Hjólamenningin
Þriðjudagur, 08. Júní 2010 17:01

Kynning á landsmóti !

Á næsta félagsfund, miðvikudaginn 9. Júní munu Óskabörnin mæta og kynna komandi landsmót.  Sem haldið verður ú Húnaveri 1. – 4. Júlí. Neddi og Hrönn eru búin að lofa að baka og bjóða uppá vöfflur í tilefni dagsinns. Við hvetjum því sem flesta til að mæta og kynna sér hvað komandi landsmót verður magnað og gæða sér á Nedda-vöfflum með.

Birt í Landsmót
Mánudagur, 15. Mars 2010 16:51

Kawasaki 2010 sýning

Sýning verður í Nítró, Bíldshöfða 9 næstkomandi fimtudag frá kl. 18:00 - 20:00 en þar munu verða til sýnis 2010 árgerðirnar af Kawasaki hjólum. Einnig ætlum við að bjóða 25% afslátt af öllum vörum í verslun okkar nema af tilboðsvörum og hjólum. Kaffi og kökur verða í boði.

Leikurinn endurtekinn út á landi:

Við munum svo endurtaka leikinn næstkomandi föstudag í N1 á Akureyri milli kl. 16:00 og 18:00, þar verður einnig boðið upp á 25% afslátt af öllum Nítró vörum nema tilboðsvörum og hjólum.
Á meðal þeirra hjóla sem verða til sýnis er Kawasaki Z1000, Kawasaki Vulcan 900 custom, Kawasaki Vulcan 1700 Classic Tourer, Kawasaki Versys ásamt Kawasaki KXF 250 og KXF 450. Ekki missa af þessu!

Birt í Upplýsingatorg

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði