Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir stendur fyrir kvikmyndakvöldi miðvikudaginn 23. mars. Sýningin hefst kl. 20:00 í Bíó Paradís (gamli Regnboginn á Hverfisgötu). Miðaverð er 800kr og á staðnum er hægt að kaupa popp, kók og annað nammi. Sýnd verður heimildarmyndinn Dust to glory, en hún segir frá Baja keppninni 2005 og baráttu keppenda við að aka 1000mílur (1600km) á sem skemmstum tíma. Nánari upplýsingar um myndina má sjá á imdb.com (http://www.imdb.com/title/tt0386423/).
Ferða og útivistarfélagið slóðavinir vekur athygli á félagsfundi sem fram fer 3. mars kl. 20:00 hjá Arctic Trucks, Kletthálsi 3. Öllu áhugafólki um ferðalög til fjalla er boðið að taka þátt.
Dagskrá fundarins er birt í meðfylgjandi auglýsingu (sjá viðhengi), en einnig á vefsvæði félagsins, www.slodavinir.org .
Undanfarnar vikur hefur hörð, óvægin og einsleidd umræða átt sér stað í bloggheimum og fjölmiðlum um umferð vélknúinna ökutækja í náttúru Íslands. Upphafið að þessari umræðu má rekja til erindis Andrésar Arnalds, fagmálastjóra hjá Landgræðslunni, sem flutt var á málstofu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir nokkru. Í erindinu teiknar Andrés upp dökka mynd af þróun skipulagsmála á Íslandi: Stjórnlausri nýmyndun vegslóða, algjöru aðgerðarleysi stjórnvalda, virðingarleysi ferðaþjónustuaðila við umhverfið, og slæleg vinnubrögð við útgáfu landakorta svo eitthvað sé nefnt. Máli sýnu til stuðnings notar Andrés ljósmyndir og texta sem teknar eru af heimasíðum hjólafólks, jeppafólks, félagasamtaka og ferðaþjónustuaðila. Andrés mun flytja erindi sitt á fundinum.
Andrés hefur náð að hrista vel upp í jeppa-, mótorhjóla- og göngusamfélaginu og án efa mun hann geta hrist upp í fundarfólki á miðvikudaginn líka.
Ómar Ragnason flytur erindi á fundinum og mun án efa ná að hrista upp í fundarfólk líkt og Andrés, en þó vonandi með öðrum formerkjum.
Stjórn félagsins kvetur alla sem áhuga hafa á málefninu að fjölmenna á fundinn.
Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir