Ágætu hjólafélagar !
Þá er komið að stæðstu helgi ársins hjá klúbbnum okkar, Ljósanóttahelgin. Eins og undanfarin ár þá hefst hátíðin okkar með grilli hjá OB á Fitjunum kl. 13:00, grillað verður til kl. 14:00 en þá verður farinn smá hringur um Skagann, síðan verður safnast saman við Nesvelli, lagt af stað niður Hafnargötuna kl. 15:00.
Bestu hjólakveðjur
Ernir, Bifhjólaklúbbur Suðurnesja
Það voru yfir 1000 mótorhjól sem lögðu af stað niður Laugaveginn í dag, 1. maí, en það var Lúðvík "Súper-Lúlli" Vilhelmsson nr. 69 sem leiddi aksturinn að þessu sinni. Tilgangurinn var að minna á mótorhjólin á göturnar aftur en ekki síst til að mótmæla óréttlæti í garð mótorhjólafólks í nýjum umferðarlögum sem nú eru fyrir alþingi til umræðu. Keyrslan gekk vonum framar með góðri hjálp bifhjóladeildar lögreglunnar. Keyrslunni fylgdi myndatökumaður frá RÚV og er hægt að sjá fréttina á þessari slóð http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497979/2010/05/01/10/