Okkur hjá Umferðarstofu og lögreglu höfuðborgarsvæðisins langar að boða forsvarsmenn bifhjólamanna á fund til okkar líkt og gert var fyrir u.þ.b. ári síðan. Við teljum að við hefðum mjög gott af því að hittast, ræða málin og leggja á ráðin um það hvernig við getum sameiginlega tryggt öryggi bifhjólamanna og annarra vegfarenda sem best. Ég hef m.a. áhuga á að kynna ykkur samantekt úr slysaskýrslu Umferðarstofu um bifhjólaslys. Okkur langar að hitta ykkur hjá Umferðarstofu í Borgartúni 30, 3. Hæð, klukkan 12:00 miðvikudaginn 21. apríl og boðið verður upp á hressingu í formi mats og drykkjar.
Eruð þið vinsamlega til í að staðfesta komu ykkar í póstfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
svo við sjáum hve margir muni koma. Við reynum að miða við að það séu helst ekki fleiri en tveir frá hverjum klúbbi.
Bestu kveðjur
Einar Magnús Magnússon
upplýsingafulltrúi Umferðarstofu
Borgartúni 30
105 Reykjavík
Símar: 580-2022 / Gsm: 659-5060
Bryndís og Bjarki akstursíþróttamenn ársins
Bryndís Einarsdóttir og Bjarki Sigurðsson voru um helgina valin akstursíþróttamenn ársins af Mótorhjóla- og snjósleðasambandi Íslands.
Tilnefnd:
Fyrsti heiðursfélagi MSÍ
Ragnar Ingi Stefánsson var valinn fyrsti heiðursfélagi MSÍ á uppskeruhátíðinni, en um þessar mundir eru rétt 30 ár síðan hann hóf sinn glæsilega keppnisferil sem enn stendur yfir. Ragnar Ingi sem nú er 45 ára gamall vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 1989 og alls eru þeir orðnir 9 talsins í motocrossi auk margra annara afreka. Ragnar Ingi var í 8.sæti í Íslandsmótinu í ár.
Nýliðar ársins einnig valdir
Ingvi Björn Birgisson var valinn nýliði ársins í Enduro og Guðbjartur Magnússon nýliði ársins í Moto-Cross. Andrea Dögg Kjartansdóttir var valinn nýliði ársins í kvennaflokki.
Guðbjörn Magnússon nýliði ársins í motocrossi
Ingvi Björn Birgisson nýliði ársins í enduro
Andrea Dögg Kjartansdóttir nýliði ársins í kvennaflokki
Myndir
www.motosport.is