Undanfarin ár hafa Sniglar og skeljungur átt með sér gott samstarf. Félagsskírteini Snigla hafa verið gefin út af Skeljungi í formi viðskipta korts sem veitir Sniglum afslætti af eldsneyti og annarri þjónustu Skeljungs. Með því að nýta sér félagsskírteinið til eldsneytiskaupa má greiða upp félagsgjaldið á u.þ.b. 4 mánuðum. Nota má félagsskírteinið til kaupa á öllu eldsneyti og á hvaða farartæki sem er.
Hér að neðan sjáum við raunhæft dæmi um venjulegan fólksbíl sem tekur í kringum 200 lítra á mánuði eða 1 sinni í viku. Með sérkjörum sniglanna er afsláttur á mánuði 1400 kr. Með þeim afslætti er hægt að segja að félagsgjaldið sem er 5200 kr. sé u.þ.b. 4 mánuði að greiðast upp.
Um leið og þú færð afslátt af eldsneyti allan ársins hring á bensínstöðvum Skeljungs og Orkunnar, styrkir Skeljungur Snigla um 1 kr. af hverjum lítra sem þú verslar, sá styrkur er eyrnamerktur forvarnarstarfi á vegum samtakanna.
Aðild að Sniglum er þvi bæði ávinningur fyrir þig og forvarnastarf tilhanda mótorhjólafólki á Íslandi. Við hvetjum alla greidda Snigla til að virkja kortin sín, sem og annað mótorhjólafólk til að ganga til liðs við snigla og njóta þessara sérkjara, sem og taka þátt í forvarna baráttunni.
Meðal nýjunga í samstarfi snigla og skeljungs eru:
![]() |
Staðgreiðslukort: Staðgreiðslukort er kort ótengt greiðslumiðli, kortið lækkar verð á dælu til samræmis við kjör Snigla óháð með hverju er greitt. Til að fá Staðgreiðslukort með sérkjörum Sniglanna þarftu að sjálfsögðu að vera greiddur meðlimur og sækja um það með því að senda póst á fé Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , mundu að taka fram félagsnúmerið þitt, nafn og kennitölu. |
![]() |
Orkulykill: Orkulykill hentar mjög vel á lyklakippuna, og er tengdur Debit eða kredit korti. Athugaðu að þú getur verið með félagskýrteinið tengt t.d. kredit korti en Orkulykilinn debetkorti. Til að fá Orkulykilinn með sérkjörum Sniglanna þarftu að sjálfsögðu að vera greiddur meðlimur og sækja um á www.orkan.is , mundu að setja Sniglar og félagsnúmerið þitt í reitinn „hópur“. |
![]() |
Fjölskyldu kort: Sniglar geta nú boðið uppá kort fyrir fjölskyldumeðlimi Snigla. Þetta gefur öllum fjölskyldumeðlimum þínum kost á að nýta sér sérkjör snigla og þar með enn meiri ávinning. Hægt er að sækja um kortið á vef skeljungs www.skeljungur.is en kortið gefur fjölskyldumeðlimum Snigla kost á að nýta sér sömu afsláttarkjör og sniglar njóta. |
![]() |
Sértilboð: Skeljungur mun einnig bjóða Sniglum sértæk sérkjör á vörum og þjónustu, í tengslum við viðburði og uppákomur í sumar. |
ATH: Orkulykillinn /-kortið verður sendur til þín þér að kostnaðarlausu. Af öryggis ástæðum kemur hann ótengdur. Þú þarft að tengja hann til að virkja afsláttinn. Leiðbeiningar fylgja heimsendingunni.
Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöld 2010 hafa verið sendir út og er eindagi þeirra 15.06.2010. Félagsgjald fyrir árið 2010 er 5.400 kr. Sú breyting var gerð þetta árið að eingöngu voru sendir út greiðsluseðlar til þeirra sem greitt hafa einhverntímann á sl. þremur árum.
Þeir Sniglar sem ekki hafa greitt undanfarin þrjú ár og fengu þar með ekki greiðsluseðil en vilja greiða félagsgjaldið er bent á að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með nafni, númeri og kennitölu og við sendum greiðsluseðil um hæl, einnig bendum við á að hægt er að gera upp félagsgjöldin á félagsfundum í Sniglaheimilinu skeljanesi á miðvikudögum kl: 20.00.