Fimmtudagur, 08. Júlí 2010 15:00

Hjóladagar !

Nú erum við á lokasprettinum að Hjóladögum 2010, og því langar okkur að hvetja hjólafólk til að mæta og skemmta sér með okkur. Sniglabandið verður að spila á laugardagskvöldinu og eins langar okkur að vekja sérstaka athygli á SWAP-MEET‘inu, sem er skipti- og sölumarkaður með hjólatengdar vörur.  Til að taka þátt í því þarf fólk bara að mæta með það sem það vill selja, eða skipta. Tilvalið tækifæri til að laga til í skúrum og geymslum. 
 
Stöndum saman og höfum gaman!
 
Kveðja,
stjórn Tíunnar.

hjoladagarnir

Birt í Hjólamenningin
Þriðjudagur, 25. Maí 2010 23:36

Skoðunardagur Arna

Skoðunardagur Frumherja og Arna 29.maí 2010

Hinn árlegi skoðunardagur Frumherja og Arna verður haldinn laugardaginn 29.maí frá kl. 10.00 - 16.00 í skoðunarstöðinni í Njarðvík. Um að gera að nýta sér að láta skoða hjólið með allt að 50% afslætti. Boðið verður upp á grillaðar pylsur í hádeginu eða á meðan birgðir endast. Félagar eru hvattir til að fjölmenna í Njarðvík. Brottför frá N1 í Hafnarfirði kl.11.00

Birt í Hjólamenningin
Laugardagur, 03. Apríl 2010 13:35

Landsmót Bifhjólafólks 2010

Húnaveri 01. - 04.júlí
 
Mótorhjólamót sem engin alvöru hjólari eða klúbbur missir af!
Landsmót hefur verið haldið ár hvert síðan 1987. Fyrstu fjögur árin í Húnaveri og 10 ára afmælismótið sem var það fjölmennasta frá upphafi, þá mættu rétt tæplega 500 gestir. Landsmót í Húnaveri hafa bara svínvirkað í gegnum árin, því erum við með uppskrift að fullkominni skemmtun! Mótið í ár er það tíunda sem haldið er í Húnaveri.


Landsmót hefur verið haldið í nafni Snigla gegnum árin en í ár eru það við í Óskabörnum Óðins MC sem höldum Landsmót Bifhjólafólks. Óskabörn Óðins MC eru ekki óvanir skemmtanahaldi enda klúbbur með yfir 20 ára sögu og reynslu. Þetta gerum við þó ekki allt einir heldur erum við að semja við aðra klúbba um aðkomu þeirra að einstökum viðburðum mótsins til að gera það sem fjölbreyttast.


Þetta er Landsmót bifhjólafólks og allir hjólarar eru velkomnir. Það er alveg ljóst að við í Óskabörnum Óðins viljum sjá miklu fleiri af þeim þúsundum hjólara sem eru á Íslandi koma á Landsmót. Við viljum sjá alla klúbbana fjölmenna með sitt hafurtask og setja upp flottar tjaldbúðir enda verða veitt verðlaun fyrir flottustu tjaldbúðirnar.


Dagskráin verður fjölbreytt að venju en þar má fyrst nefna tónlistaratriðin þar sem Sniglabandið fer fremst í flokki, ásamt fleirum frábærum hljómsveitum. Kappleikirnir víðfrægu, burnoutkeppni, ofl.ofl. Veglegir vinningar í öllum keppnum. AA fundir verða haldnir fyrir óvirka. Þeir sem vilja selja vörur og eða fatnað á mótinu hafi samband við neðangreinda.


Mat í magann. Ljúffeng kvöldmáltíð föstudagskvöld, Landsmótssúpa laugardagskvöld, orkumikil morgunhressing alla morgna.


Óskabörnin munu senda út ítarlega dagskrá/auglýsingu þegar nær dregur en þið getið treyst því að við munum tjalda öllu til að gera þetta 10. Landsmót í Húnaveri sem eftirminnilegast. Hlökkum til að sjá ykkur!


Frekari upplýsingar veitir Baldvin í síma 894-2848 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Eyþór í síma 773-1505 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Birt í Landsmót
Fimmtudagur, 25. Mars 2010 22:17

Snigla afmæli

1. apríl verða Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar 26 ára. í tilefni dagsins verður afmælis húllumhæ á Sniglafundi miðvikudaginn 31. mars uppúr kl 19:00. við verðum með afmælisköku og einnig verður grilluð pylsa og kók selt á 300 kr. til styrktar hússjóði Snigla.

Við hvetjum alla snigla, sem og annað hjólafólk að mæta á fundinn næsta miðvikudag og fá sér pylsu og köku með okkur.

Birt í Sniglar
Miðvikudagur, 17. Mars 2010 00:36

Sniglabandið

Óskabörnin eru búinn að ganga frá samningum við Sniglabandið um að halda uppi stuðinu á Landsmóti 2010. Sniglabandið mun spila á balli bæði kvöldin. Það er löngum þekkt að Sniglar stuð-dýr mikil og framúr hófi skemmtileg, verður varla ekki breyting á úr þessu. Aðkoma Sniglabandsinns að landsmóti getur því bara bætt í stemminguna.  www.sniglabandid.is

Birt í Landsmót
Sunnudagur, 14. Mars 2010 17:36

Landsmót Bifhjólafólks 2010

Landsmót Snigla á sér langa hefð og hefur verið haldið ár hvert fyrstu helgina í Júlí, í gegnum tíðina hefur landsmót verið á herðum Snigla með aðkomu klúbbanna að einstaka þáttum. Fyrir nokkrum árum var nafni landsmóts breytt í Landsmót bifhjólamanna og var hugmyndin að klúbbarnir myndu skiptast á að taka að sér að sjá um og skipuleggja landsmót. Fram til þessa hefur þetta þó verið með hefðbundnu sniði. Landsmót bifhjólamanna árið 2010 mun því marka tímamót í sögunni  því undiritaður hefur verið samningur  við Óskabörn Óðins um að standa að Landsmótshaldi þetta árið. Landsmót bifhjólamanna verður því alfarið á herðum Ósabarnanna þetta árið og eigum við hjólafólk sennilega ekki von á neinu öðru en þrumu landsmóti enda Óskabörnin ekki þekkt fyrir annað þegar kemur að mótshaldi.

Við munum í samstarfi við Óskabörnin reyna að flytja fréttir af undirbúningnum í aðdraganda Landsmóts, svo nú er ekkert annað að gera en að taka frá fyrstu helgina í Júlí og byrja að byggja upp spennu. Giftingar sem og annar gjörningur sem komið getur í veg fyrir mætingu  er með öllu bannaður þessa helgi.

Sniglar og Óskabörn Óðins

Landsmót

Birt í Landsmót
Föstudagur, 26. Febrúar 2010 16:05

Landsmót á Youtube

Það er alltaf gamað að rifja upp góðar stundir, sér í lagi ef nokkur ár eru liðin afá því að það gerðist eftirfarandi myndbönd frá fyrri árum má finna á www.youtube.com ef leitað er eftir Sniglum, öll eru tilþrifin góð og stemmingin skemmtileg. Ef þið vitið af fleirrum svona myndböndum á vefnum, látið okkur endilega vita á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 Landsmót 2007

Birt á youtube af: eoe66

 

Sniglið á Landsmóti Snigla 2007

Birt á youtube af: Snigill527

 

Landsmót bifhjólafólks Lýsuhóli 2008

Steini Tótu reynir við að keyra yfir Dodge Caravan á Landsmóti Snigla 2008 og mistekst það.

Birt á youtube af: Snigill527

 

Burnout - Landsmót Bifhjólafólks 2008

Birt á youtube af: SvenniDal

 

Landsmót bifhjólafólks 2009

Keppni í snigli á Landsmóti Bifhjólamanna 4júlí 2009.

Birt á youtube af: Snigill527

Birt í Landsmót
Laugardagur, 19. Desember 2009 14:24

ANDSKÖTUSÚPA

Á Þorláksmessu munu Kerúbar, Sober Riders MC Iceland, bjóða gestum og gangandi upp á hina árlegu sjávarréttasúpu á Lækjartorgi.


Pottarnir verða opnaðir kl 12 og skenkt meðan birgðir endast

Við köllum hana Andskötusúpuna !!
Sjávarréttasúpan okkar er kröftugt svar við skötuhefðinni. Ríkuleg og matmikil súpa með humri, rækjum, hörpudiski, bláskel og nýveiddum fiski.

Súpan er ókeypis , en hefð er fyrir því að gefa eitthvað í söfununarbaukinn. Baukurinn verður svo afhentur óskiptur til hjálparstarfs Samhjálpar.

Ýmsir gestir ýta undir jólaskapið

Jólakór
Edgar Smári
KK
Jón Tryggvi og félagar
ásamt fleiri uppákomum

Allir velkomnir!!

Birt í Hjólamenningin

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði