Á Burnout 2010 sýningunni var í mótorhjólaflokki kosið um flottasta hjólið, flottasta forn hjólið og athyglisverðasta hjólið. Valið var í 1. 2. Og 3. Sæti í hverjum flokki en verðlaun voru veitt fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki. Verðlaun voru vörur úr sniglabúðinni.
Dómnefndina skipuðu:
Villi Bakari
Sara Bergsdóttir miðasöludama
Joe Henry Ritter Ljósmyndari frá Brooklin.
Úrslit:
Flottasta Hjólið:
1. Custom – Gladiator Eigandi: Ólafur Þór Arason
2. Custom 2006 Eigandi: Björgvin U Ólafsson
3. Suzuki Hayabusa Eigandi: Rúnar Breiðafjörð Ásgeirsson
Flottasta forn hjólið:
1. Hederson 1918 Eigandi: Grímur Jónsson
2. Harley Davidson DL Eigandi: Dagrún Jónsdóttir
3. Ariel 1945 Eigandi: Timerinn
Athyglisverðasta hjólið:
1. Hederson 1918 Eigandi Grímur Jónsson
2. Piaggio Super 150 1972 Eigandi: Björgvin Ploder
3. Zundapp 1934 Eigandi: Mótorhjólasafn Íslands
Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sniglar, Kvartmíluklúbburinn og BÍKR hafa sameinað hestöfl sín og skapa stóran og fjölbreyttan mótorsport viðburð helgina 30. apríl til 2. maí. Burnout Helgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautar rallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á samskipasvæðinu við Holtagarða, Sniglar munu standa fyrir árlegri 1. maí keyrslu, forvarnardegi og Íslandsmeistara móti í hjólafimi þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Alla helgina mun svo standa yfir glæsileg sameiginleg sýning Snigla og Kvartmíluklúbbsins í kauptúni Garðabæ. Sýnd verða rúmlega 300 tæki, sportbílar, kvartmílu tæki og um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjóla hluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum, og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður. Ýrr í Tatoo bike verður með airbrush og á sýningunni verða hjól sem hafa verið skreytt með airbrush. Kynning verður á mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna. Við hvetjum alla til að láta sjá sig, skoða glæsilega sýningu og styðja við bakið á mótorhjólasfninu og forvarnarstarfinu.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sniglar ætla að standa fyrir mótorhjólasýningu 1. og 2. maí í tengslum við hópkeyrslu og viðburði forvarnardags Snigla og mun ágóði sýningarinnar að mestu leiti renna til byggingar Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri (www.motorhjolasafn.is) og svo til forvarnarstarfs Snigla. Þema sýningarinnar er gamalt og sérstakt, en ætlunin er að sýna bæði gömul og sérstök/sérsmíðuð mótorhjól. Við leitum því til ykkar kæra mótorhjólafólk með hjól og gripi á sýninguna eða ábendingar um hjól sem ættu heima á sýningunni. þeir sem geta hjálpað okkur er bent á að hafa samband við Berg Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. / Sími: 864-1090.
Sniglar Athugið okkur vantar upplýsingar frá ykkur varðandi mundi sem fundist hafa í geymslu. Það fannst fullur kassi af alskinns bikurum ýmist merktir frá landsmóti snigla sem verðlaun í leikjum eða merktir frá mótum erlendis frá t.d. lengst aðkomin hjólamaðurinn.
Við sem stöndum að utanumhaldi á munum til safns snigla vantar að vita hver/ hverjir hafi fengið þessa bikara og hvert var tilefnið og hvaða ár og fleira. Ástæðan er að við viljum skrá setja allt sem kemur á safnið hvort heldur það er til gjafar eða láns til að það fari ekki neitt á milli mála uppruni gripanna.
Vinsamlega sendið okkur línu ef þið þekkið þessa gripi og hvaðan þeir koma svo hægt verði að skrá setja þetta.
Jóhanna Traustadóttir GSM: 899 – 6452 (jómba # 875 ) og Stefanía Hinriksdóttir ( Stebba #1448)
Sýning verður í Nítró, Bíldshöfða 9 næstkomandi fimtudag frá kl. 18:00 - 20:00 en þar munu verða til sýnis 2010 árgerðirnar af Kawasaki hjólum. Einnig ætlum við að bjóða 25% afslátt af öllum vörum í verslun okkar nema af tilboðsvörum og hjólum. Kaffi og kökur verða í boði.
Leikurinn endurtekinn út á landi:
Við munum svo endurtaka leikinn næstkomandi föstudag í N1 á Akureyri milli kl. 16:00 og 18:00, þar verður einnig boðið upp á 25% afslátt af öllum Nítró vörum nema tilboðsvörum og hjólum.
Á meðal þeirra hjóla sem verða til sýnis er Kawasaki Z1000, Kawasaki Vulcan 900 custom, Kawasaki Vulcan 1700 Classic Tourer, Kawasaki Versys ásamt Kawasaki KXF 250 og KXF 450. Ekki missa af þessu!
Laugardaginn 14. nóv. fór útivistar- og sportsýninging Kraftur fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki. Vélhjólafélag Smaladrengja sýndi 17 hjól auk þess sem Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar sýndi fjölda hjóla. Þess utan gat að líta fjölda breyttra fjallabíla, snjósleða, fjórhjól, byssur o.m.fl.
1200 manns sóttu sýninguna og eru þeir sem komu að henni sammála um að mjög vel hafi tekist til við þessa frumraun. Ekki skemmdi veðrið fyrir, en frostlaust var og því engin vandkvæði á að koma hjólunum að og frá sýningarstað. Hægt er að sjá myndir frá sýningunni í myndaalbúmi undir nafninu Kraftur 2009.
Fengið af http://www.smaladrengir.is/
Þriðjudaginn 24. nóvember standa Slóðavinir fyrir myndasýningu, til okkar koma þeir Ingólfur Kolbeinsson og Viggó Már Jensen, en þeir félagar afrekuðu það í sumar að hjóla frá Nýja Sjálandi og alla leið til Íslands, 22.000 kílómetra á fjórum mánuðum. Þeir koma með ferðasöguna og myndir. Myndasýningin verður haldin í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3, og hefst kl. 20:00.
Til að gefa smá innsýn í þetta 4 mánaða ferðalag þeirra félaga þá fóru þeir í gegnum Thailand, Kambódía, Laos, Thailand, Kína (ekki hjólin), Móngólía, Rússland, Úkraína, Móldóvía, Rúmenía, Úngverjaland, Austuríki, Sviss, Frakkland, Þýskaland, Dannmörk og Ísland. Mörg þessara landa eru mjög vanþróuð og töluðu þeir sérstaklega um að vegirnir í Móngólíu hefðu verið svakalegir því í rigningum breyttust þeir í eitt stórt drullusvað. Rússland var það land sem þeim þótti erfiðast og verður gaman að heyra hvers vegna það var.
Vonumst til að sjá sem flesta, Slóðavinir.