Á vormánuðum, nánar tiltekið helgina 1.-2. apríl, héldu Sniglar málþing um öryggi og ímynd bifhjólafólks á Íslandi. Málþingið var tvískipt, á föstudeginum 1. apríl var það með þjóðfundarsniði þar sem fulltrúar hinna ýmsu mótorhjólaklúbba og fleiri komu saman og skiptust á skoðunum um það hvar áherslur ættu að liggja í baráttunni fyrir bættu öryggi og ímynd bifhjólafólks. Fundurinn stóð yfir í tvo tíma og var margt gott og áhugavert sem kom út úr honum.
Á laugardeginum var málþingið með hefðbundnu ráðstefnusniði. Haldnir voru nokkrir fyrirlestrar fyrir hádegi og var efni þeirra mjög fjölbreytt. Umferðarnefnd Snigla sagði frá helstu verkefnum sem unnið var að og bar þar hæst verkefni í samstarfi við Vegagerðina um lagfæringar á vegakerfinu með það að markmiði að auka öryggi bifhjólafólks. Einnig var sagt frá svokallaðri Núllsýn sem er verkefni sem miðar að því að fækka banaslysum í umferðinni.
Þrír góðir gestir fluttu einnig fyrirlestur á málþinginu. Ágúst Mogensen hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa sagði frá bifhjólaslysum og hvað væri hægt að bæta til að koma í veg fyrir þau. Holger Torp frá Umferðarstofu sagði aðeins frá bifhjólaréttindum og hvaða breytingum þau taka ef ný umferðarlög verða samþykkt óbreytt á Alþingi og Sigrún Knútsdóttir kynnti síðan starfsemi Grensásdeildar LSH. Áður en haldið var í hádegismat var síðan sagt lauslega frá niðurstöðum þjóðfundarins frá deginum áður.
Eftir að málþingsgestir höfðu fyllt maga sína var haldið áfram. Ögmundur Jónasson, Innanríkisráðherra, hélt ræðu og að henni lokinni sátu Ögmundur, Geir Jón Þórisson frá Lögreglunni, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Runólfur Ólafsson FÍB, Sigurður Helgason frá Umferðarstofu og Hrönn Bjargar Harðardóttir úr stjórn Snigla, fyrir svörum fundargesta. Umræðurnar voru hinar líflegustu og margt áhugavert sem kom þar fram eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
Af óviðráðanlegum ástæðum hafa niðurstöður þjóðfundarins ekki enn verið gerðar opinberar en bætt verður úr því á næstunni. Fyrirlestrarnir og umræðurnar á laugardeginum voru hins vegar teknar upp og eru aðgengilegar á youtube síðu Snigla og einnig er hægt að horfa á þér neðar í þessari frétt.
Setning
Núllsýn
Verkefnin
Vegagerðarverkefnið
Nú styttist óðfluga í málþing Snigla um öryggi og aðstæður bifhjólafólks á Ísland. Málþingið verður haldið helgina 1. - 2. apríl og verður í Gamla kennaraháskólanum við Stakkahlíð. Föstudaginn 1. apríl, verður þjóðfundur fyrir hjólafólk þar sem mótuð verður framtíðarsýn bifhjólafólks hvað varðar öryggismál og ímynd bifhjólafólks. Þjóðfundurinn er opinn öllu hjólafólki og hvetjum við þá sem vilja taka þá að skrá sig með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Á laugardeginu, 2. apríl, tökum við daginn snemma og hefjum dagskrána kl 10 um morgunin. Þar verður fjallað um það sem Sniglar hafa verið að vinna að upp á síðkastið og áherslan verður aðallega á forvarnir og framtíðina. Eftir hádegi verða svo opnar umræður þar sem meðal annars innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, verður meðal þátttakenda.
Bifhjólasamtök lýðveldisins - Sniglar ætla að hefja sumarvertíðina með málþingi, þar sem við ætlum að dusta vetrardvalann af hagsmunamálum okkar og gíra upp fyrir glæsilegt hjólasumar. Málþingið verður haldið í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð dagana 1. og 2. apríl næstkomandi. Megin áhersla málþingsins verður á forvarnir og núllsýn í umferðinni.
Málþinginu verður skipt í tvennt, lokaður þjóðfundur á föstudag og svo opið málþing á laugardeginum. Dagskrána má finna hér.
Á fundinn á föstudeginum milli 17:00 og 19:00 hafa verið boðaðir fulltrúar allra hjólaklúbba sem Sniglar hafa á skrá. Hlutverk fulltrúanna verður að taka þátt í að móta áherslur í framtíðarsýn bifhjólafólks og þannig ljá verðugum hagsmunum rödd sína. Eða á mannamáli, svara spurningunni um fyrir hverju ættu forsvarsmenn bifhjólafólks að vera berjast næstu misserin? Enn eru laus nokkur pláss og hægt að skrá sig í tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Á laugardeginum hefst dagskráin kl: 10:00 og stendur til 16:00. Þá verður opið málþing sem hver sem er getur mætt á og tekið þátt í umræðunum.
Fyrir hádegi verður fjallað um það sem Sniglar hafa verið að vinna að upp á síðkastið og áherslan verður aðallega á forvarnir og framtíðina. Boðið verður upp á súpu í hádeginu.
Eftir hádegi mun svo Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flytja ávarp og taka þátt í pallborðsumræðum ásamt fulltrúum frá FÍB, lögreglunni, vegamálastjóra og umferðastofu. Að því loknu verða atriði á svæðinu kringum skólann þar sem fólki verður boðið upp á að fá smá upprifjun um rétt handbrögð undir handleiðslu kennara og bifhjólavirkja , möguleika til að prufa vespur og trial –hjólasýning, ef veður leifir. Hægt verður að skrá sig á námskeið í keyrslu á möl, upprifjunarnámskeið, aðkomu að slysi og fleira. Ýmis umboð og verslanir verða með kynningar á svæðinu á vörum sínum, allt frá hjólum og hlífðarfatnaði til stoðtækja.
Dagskrá málþingsins verður fjölbreytt og viljum við hvetja allt bifhjólafólk að taka þátt í þessari fyrstu uppákomu vorsins, og mæta á hjólunum ef veður leyfir.
Hjólin okkar flestra eru farin að ókyrrast eftir vetrardvalann. Vorið er að koma, og glæsilegt hjólasumar á næsta leiti. Hefjum vertíðina eins og við viljum enda hana, meðvituð um hætturnar í umferðinni en með gleðina í hjartanu. Stefnum að því að í ár verði Núllsýnar hjólasumar,
Engin alvarleg slys og engin dauðsföll í umferðinni.
Undirbúningsnefnd.
Á fimmtudag hefst Umferðarþing á Grand Hótel Reykjavík. Þingið er haldið annað hvert ár og er hápunktur ársins hjá öllum þeim sem vinna í umferðaröryggismálum á Íslandi, hvort sem er í grasrótinni eða opinbera geiranum. Eitt helsta umfjöllunarefni þingsins verður Núllsýn í umferðarslysum, en Sniglar hafa einmitt látið til sín taka í þeim efnum nýlega. Aðalgestur Umferðarþingsins að þessu sinni er Claes Tingvall, einn aðalhöfundur Núllsýnarinnar og yfirmaður Trafikverket í Svíþjóð. Sú var tíðin að Tingvall þessi var kallaður óvinur mótorhjólafólks nr. 1 en það hefur breyst í seinni tíð sem betur fer. Þegar Núllsýnarhugmyndin kom fyst fram lét hann nefnilega hafa eftir sér að mótorhjól pössuðu ekki inn í þá hugmyndafræði og þess vegna yrðu mótorhjól að hverfa með tímanum. Hávær mótmæli bárust við þessu hvaðanæva að úr Evrópu eins og sumir muna eftir, meðal annars fyrir tilstilli samtaka þeirra sem mynda FEMA í dag. Það var svo aðallega fyrir tilstilli þeirra samtaka og þá sérstaklega SMC í Svíþjóð að Tingvall hefur nú snúið við blaðinu og sagt að mótorhjólasamtök séu mjög mikilvæg og nauðsynlegur samstarfsaðili fyrir opinbera aðila. Þetta lét hann hafa eftir sér á ráðstefnu lögreglumanna í Bretlandi fyrir skömmu þegar hann var spurður hvort að hann vildi ennþá losna við mótorhjólafólk af götunum. Hann sagði ennfremur að mótorhjól væru órjúfanlegur og mikilvægur hluti umferðarinnar. Hver segir svo að það sé ekki ennþá von fyrir mótorhjól...
Umferðarnefnd Snigla hefur sótt um tvo rannsóknarstyrki til Vegagerðarinnar vegna 2010 fyrir hönd Bifhjólasamtaka Lýðveldisins. Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög til rannsóknaverkefna, en það er rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun. Verkefnin tvö sem um ræðir eru annars vegar Bifhjól, vegbúnaður og öryggi, og hins vegar um Núllsýn í bifhjólaslysum og útgáfu handbókar fyrir vegagerð þar sem tekið verður sérstakt tillit til öryggis bifhjólafólks. Norsku mótorhjólasamtökin NMCU hafa tekið upp þessa sýn og opnað meðal annars fyrsta veginn í heiminum sem kalla má "öruggan" fyrir mótorhjólafólk og vænta má samstarfs við nágranna okkar í þessum efnum. Tilkynnt verður hverjir hljóta styrki í marsbyrjun.