Bryndís og Bjarki akstursíþróttamenn ársins
Bryndís Einarsdóttir og Bjarki Sigurðsson voru um helgina valin akstursíþróttamenn ársins af Mótorhjóla- og snjósleðasambandi Íslands.
Tilnefnd:
Fyrsti heiðursfélagi MSÍ
Ragnar Ingi Stefánsson var valinn fyrsti heiðursfélagi MSÍ á uppskeruhátíðinni, en um þessar mundir eru rétt 30 ár síðan hann hóf sinn glæsilega keppnisferil sem enn stendur yfir. Ragnar Ingi sem nú er 45 ára gamall vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 1989 og alls eru þeir orðnir 9 talsins í motocrossi auk margra annara afreka. Ragnar Ingi var í 8.sæti í Íslandsmótinu í ár.
Nýliðar ársins einnig valdir
Ingvi Björn Birgisson var valinn nýliði ársins í Enduro og Guðbjartur Magnússon nýliði ársins í Moto-Cross. Andrea Dögg Kjartansdóttir var valinn nýliði ársins í kvennaflokki.
Guðbjörn Magnússon nýliði ársins í motocrossi
Ingvi Björn Birgisson nýliði ársins í enduro
Andrea Dögg Kjartansdóttir nýliði ársins í kvennaflokki
Myndir
www.motosport.is