Föstudagur, 03. Júní 2011 23:03

Tíu ný mótorhjól til landsins

Það er orðið fáheyrt á síðustu misserum að tíu ný mótorhjól komi til landsins í einni sendingu en það gerðist þó í dag. Biking Viking mótorhjólaleigan tók í dag á móti tíu nýjum Triumph Tiger mótorhjólum sem fara í útleigu strax í næstu viku. Þessi nýju ævintýrahjól eru 800 rsm og skila 95 hestöflum sem er það besta í þessum flokki mótorhjóla. Hægt verður að skoða eitt hjól strax á morgun á sýningu Kletts ehf niðri í Klettagörðum á milli kl 13 og 17.

Birt í Upplýsingatorg
Þriðjudagur, 02. Nóvember 2010 21:32

Sniglar í Prag

Gunnar Gunnarsson formaður og Njáll Gunnlaugsson eru nýkomnir frá mótorhjólaráðstefnu í Prag í Tékklandi. Það voru MACR samtökin sem héldu ráðstefnuna, en þetta er ný samtök mótorhjólafólks þar í landi með um 4000 meðlimi. Þar sem Bifhjólasamtök Lýðveldisins eru eldri en tvævetur þótti þeim við hæfi að bjóða tveimur úr okkar röðum á ráðstefuna og reyna að fræða þá aðeins í hagsmunabaráttunni. Gunnar og Njáll héldu báðir fyrirlestra, Gunnar um starf Snigla og sögu, og Njáll um kennslufyrirkomulagið á Íslandi, sem þeir vilja gjarnan taka upp. Þar tíðkast það nefnilega að kennari sitji aftan á kennsluhjólinu og notar hann þá aukastýri með stjórntækjum. Kennslumálin í Tékklandi er víst í hálfgerðum ólestri og þar komast margir upp með að kaupa prófið án þess að þurfa að fara í gegnum nokkra kennslu. Að öðru leyti glíma þau mikið til við sömu vandamál og við. Í heimsókninni náðust góð tengsl við þessi vinasamtök okkar og munum við eflaust njóta góðs af því í framtíðinni.

Birt í Sniglar
Þriðjudagur, 27. Júlí 2010 21:26

Custom Bike sýning á Menningarnótt

Custom Bike sýningu á Menningarnótt 21 ágúst.

H-DC ICE stendur fyrir Custom Bike sýningu á Menningarnótt 21 ágúst. Við erum að leita eftir hjólum af öllum stærðum og gerðum sem menn vilja sýna.
Hugmyndin er að fá hjólin á sýningasvæðið kl 13 en sýningin hefst svo kl 14 og lýkur kl 17.
Með þessu erum við að efla áhuga almennings á mótorhjólum og á H-DC ICE að sjálfsögðu en sýningarsvæðið verður í miðbænum.

Nánanari upplýsingar síðar.
Skráðu hjólið þitt hjá Spessa 8201918 eða Sigga Porter 8562756

Birt í Hjólamenningin
Þriðjudagur, 06. Júlí 2010 00:32

Dempara stillingar

Til landsins er að koma mjög færa maður sem getur hjálpað okkur að stilla og setja upp dempara á hjólum.

Viðkomandi aðili heitir Wayne og er mjög fær í að setja upp og stilla allar tegundir dempara, hvort sem um er að ræða Road-Race, Touring, Supermoto eða Enduro/Motokrosshjól. Hann hefur starfað við Worldsuperbike, MotoGP, WEC, ásamt því að hafa unnið fyrir Ghost Rider svo eitthvað sé nefnt.

Hann hefur stillt fyrir okkur hjólin þegar við höfum farið erlendis að hjóla í brautum og hefur það gert gæfu mun.

Við viljum stilla þessu í hóf og ætlar hann því aðeins að rukka 10þús fyrir hjól. Og þar sem margir eyða tugum þúsunda og jafnvel hundruðum þúsunda árlega í púst og aukahluti, í von um að hjólin virki betur, ætti því 10þús. ekki að vera mikil peningur í svona lagað, frekar gjöf en ekki gjald

Að hafa réttar stillingar á hjólinu eru ekki bara til þess gerðar að bæta akstur hjólsins, þær spara líka dekkin og veita meira öryggi í akstri, sem gefur svo aftur aukna akstursánægju og betri tíma í braut.

Við stefnum á að hann verði bæði upp á Rallýkrossbraut og jafnvel á einhverju motokross svæðinu og hjálpi fólki að setja upp fjöðrunina á meðan það tekur nokkra hringi og kemur svo aftur inn og geta þá sagt hvað þeim finnst og unnið út frá því að "0" stilla hjólið.

Wayne hefur ekki bara margra ára reynslu af uppsetningu hjóla, heldur líka mjög góðan skilning á því hvað hver og einn ökumaður leitar eftir.

Dagskráin er eitthvað svona:
Fimmtudagskvöldið 8. Júlí Rallýkrossbraut á milli 19:00-22:00 (Supermoto og Götuhjól)

Föstudagurinn 9. Júlí ef næg þátttaka fæst, þá verður hann með uppsetningu á Enduró og krosshjólum, en til þess að þetta náist, þurfum við í það minnsta 5 manns (enduro/motokross)

Laugardagurinn 10. Júlí Hjólalegan Þórisstöðum Hvalfirði á milli 14:00-18:00 (Götuhjól)

Sunnudagurinn 11. Júlí Rallýkrossbrauti á milli 16:00-19:00 (Supermoto og Götuhjól)

Allir þessir tímar geta breyst, bæði eftir veðurfari og þátttöku, því er best að vera í sambandi við mig fyrir hvern tíma. Já það væri gott ef fólk hefur áhuga á þessu, að vera í bandi og bóka þann tíma svo við getum skipulagt þetta almennilega og allir fengið sem mest út úr þessu.

Rúnar P.
s. 6974881
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Birt í Hjólamenningin
Mánudagur, 21. Júní 2010 11:13

Hjóli stolið

Mótorhjóli var stolið, þetta er Yamaha r6 racer samlitað blátt og engir límiðar á því, á að vera með númerinu bk 365 en gæti verið búið að skifta um númer , þetta er Eina hjólið á landinu í þessum lit sem er samlitað þannig þetta fer ekki fram hjá neinum . Allar upplýsíngar um hjólið væru vel þegnar . þetta gæti verið í bílageymsluni ykkar eða bara fyrir udan hjá ykkur. Allar upplýsingar vel þegnar, sími hjá eiganda er 8683608.

Birt í Hjólamenningin
Þriðjudagur, 15. Júní 2010 11:32

Mótorhjólasafn Íslands.

Sniglar færðu Mótorhjólasafni Íslands styrk að upphæð ein miljón króna nú a dögunum. En aðkoma Snigla að Burnout 2010 sýningunni var meðal annars til styrktar safninu. Mótorhjólasafn Íslands rís á Akureyri í minningu Heidda #10 en fyrsta skóflustungan að byggingunni var tekinn sumarið 2008 og var húsið fokelt uppúr áramótum 2010. Mikið er þó enn eftir og mikilvægt að hjólafólk og aðrir áhugamenn um mótorhjól og þá sögu sem þau eiga sér hér á landi standi saman um að efla og ljúka þessu verkefni. Áætlað er að opna safnið sumarið 2011 en fyrsta sýning í húsinu verður núna á bíladögum 17 – 20 júní. Við hvetjum alla sem verða á ferðinni fyrir norðan bíladagahelgina til að líta við og skoða safnið ! www.motorhjolasafn.is

Birt í Sniglar
Föstudagur, 11. Júní 2010 18:11

styrktarreikningur

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur til að hjálpa Hirti L Jónssyni

(Líklegur) til að eignast mótorhjól að nýju.

 

Eins og flestir í vélhjólasamfélaginu á Íslandi vita var Husqvarna hjólinu hans Hjartar stolið í byrjun Júní.

Hjörtur er einn af þeim sem standa fremst þegar kemur að félagstörfum og að hagsmuna gæslu sem snýr að notkun vélhjóla.

Hjörtur hefur unnið undanfarna tvo áratugi að minnsta kosti að því að auka hag vélhjólafólks og hagsmunaaðila vélhjóla greinarinnar á Íslandi.

Hann hefur starfað ötullega í stjórn Snigla, sem keppnisstjóri Endurokeppna, sem framkvæmdarstjóri Vélhjólaíþróttaklúbbsins VÍK, núverandi stjórnarmaður Ferða og Útivistarfélagsins Slóðavina ásamt því að vera góður félagi í mörgum öðrum mótorhjóla klúbbum.

 

Þar sem Hjörtur hefur verið okkur hjólafólki mikilvægur og við viljum endilega að hann haldi sínu góða starfi áfram höfum við stofnað fyrir hann styrktar reikning þangað sem við viljum benda velunnurum hans að leggja inn frjáls framlög til að koma tveimur hjólum undir Hjört sem fyrst. Verði Hjörtur svo heppinn að finna sinn heittelskaða Húska leggjum við til að hann nýti sjóðinn sem safnast til endurnýjunar, ......ef hann vill.

 

Reikningurinn er 0701-05-302313 er hjá MP Banka og er á hans nafni, Hjörtur L. Jónsson kt 170160-4609

Reikningurinn verður virkur í gegnum heimabanka laugardaginn 12 Júní.


Asgeir Orn Runarsson

Birt í Hjólamenningin
Miðvikudagur, 09. Júní 2010 18:33

Skoðunardagur

Frumherji í samstarfi við Sniglar, Bifhjólasamtök lýðveldisins, bjóða þér að koma í skoðun með bifhjólið þitt laugardaginn 12. júní í skoðunarstöð Frumherja að Hesthálsi 6-8 í Reykjavík. Húsið opnar klukkan 9:00 og við reiknum með að vera búin um kl. 14:00.

Við byrjum daginn á að bjóða upp á rjúkandi heitt kaffi og kakó. Þegar nær dregur hádegi munum við bjóða upp á grillaðar pylsur og gos.
Hittumst öll hress og kát og gerum þennan dag að skemmtilegri samverustund.

Allir geta látið skoða, endastafur númers skiptir ekki máli. Verð fyrir skoðun er kr. 3.300.

Ath: Tilboð þetta gildir ekki með öðrum afsláttum eða tilboðum.

Frumherji – örugg bifreiðaskoðun og Sniglar

Birt í Sniglar
Miðvikudagur, 02. Júní 2010 23:47

Hjóli stolið

Í dag var Husqvarna TE410 hjólinu mínu stolið fyrir utan Ásgarð 53. Hjólið er ekki mikils virði sem söluvara, en hefur mikið tilfinningarlegt gildi fyrir mig. Hjólið er 13 ára og ef einhverjum tekst öðrum en mér að koma því í gang þá er það ónýtt strax. Því er það mér mikill akkur að hjólið finnist sem fyrst.

 

 Ég sendi með mynd af hjólinu, en framljósið er núna svart og ekki hlífar fyrir handföngunum.

Hjörtur L. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

Birt í Hjólamenningin
Mánudagur, 10. Maí 2010 20:24

árekstur mótorhjóls á uþb. 50 Km/Klst

Droppið á hjólinu sem var Honda CB 250 1997 árgerð frá ökuskólanum Aðalbraut var úr 15 metra hæð og mun það jafngilda amk 50 km hraða á klst. Búið var að taka alla vökva eins og bensín af hjólinu til að minnka áhættu og einnig fjarlægja gler úr ljósum oþh. Athyglisvert var að sjá hvernig höggið beygði grind hjólsins aftur þannig að afturhluti bensíntanks beyglaðist. Einnig brotnaði felga í tvennt og tvær mótorfestingar gáfu sig.

Fallið var myndað á tvær háhraða myndavélar og á eina vél staðsetta í kranabómu. myndirnar verða notaðar við kennslu og í fræðsluefni.

Myndskeið úr Kranabómu og myndir af hólinu eru hér fyrir neðan:

 

Birt í Forvarnir
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði