Hópkeyrslunni, sem átti að fara fram í gær, hefur verið fundinn tími kl 20 í kvöld.
Safnast verður saman á laugarveginum klukkan 19:30 og röð mynduð frá mótum Bankastrætis og Laugarvegar, keyrslan sjálf hefst Kl 20:00 og verður ekið niður Bankastræti, til vinstri Lækjargötu og svo til hægri Vonarstrætið meðfram Tjörninni. Suðurgata er ekin í suður og svo Hringbrautin niður að JL húsinu. Þá er ekinn Grandinn niður að Geirsgötu sem er ekin meðfram höfninni niður á Sæbraut. Sæbraut er að lokum ekin út að Íslandsbanka og komið inn á Laugarnesveginn áður en ekið er inn á Sundlaugarveg og inn á Kirkjusand.
Viljum við hvetja hjólafólk til að koma og sýna að við látum ekki veðurguðina slá okkur útaf laginu.
Nú styttist óðfluga í Sumardaginn fyrsta og hina árlegu hópkeyrslu Snigla upp á Akranes. Eins og undanfarin ár er þessi viðburður unnin í samvinnu klúbbana Trúboða og Skugga.
Dagskráin verður með nokkuð hefðbundnu sniði. Safnast verður saman við Select á Vesturlandsvegi kl 11:30 og svo lagt af stað fyrir Hvalfjörðinn kl 12 og verða það Raftar sem munu leiða keyrsluna. Stoppað verður aðeins í Ferstiklu áður en síðasti spölurinn upp á Skaga verður ekinn og þar mun veitingastaðurinn Gamla Kaupfélagið taka á móti okkur. Frá Akranesi verður svo haldið í Lögreglufylgd til Reykjavíkur og endað á mótorhjólatónleikum Trúboða.
Að þessu tilefni verður hjá Skeljungi og munu þeir bjóða góðan afslátt af eldsneyti.
Nánari dagskrá verður auglýst á næstu dögum.
Laugardaginn 26. júní höldum við í Örnunum okkar árlega N1 dag, mæting er við N1 upp í Ásbrú ( sama stað og síðast ) þar sem boðið verður upp á grill, gos og kaffi, þá mun Nitró vera með kynningu á því sem þeir eru að selja, mæting er kl. 12:00, lagt verður síðan af stað frá N 1 kl. 13:15 og haldið út í Garð þar sem Sólseturhátiðin stendur yfir, þar verða hjólin til sýnis fyrir hátíðargesti, áætlað 30 mínútna stopp þar, úr Garðinum verður svo tekinn smá hjóltúr og endað upp í Icebike í Keflavík þar sem boðið verður upp á samlokur og drykki.
Með hjólakveðju og von um að sjá sem flesta
Stjórn Arna
Mótorhjóladagurinn 09.05 2010
Hópur velunnara sveitarfélagsins Vogar á Vatnsleysuströnd stendur fyrir: átakinu - "Sveitarfélagið Vogar lifandi bær" – Gerum Sveitarfélagið Vogar virkilega lifandi á okkar hátt og tökum þátt í að gera mótorhjóladag. Hist verður á N1 Lækjargötu sunnudaginn 09.05 klukkan 12 lagt verður af stað 12:30 og hjóla ströndina í góðri þyrpingu. Taka flottasta rúntinn sem er Vatnleysuströndin og hittast í Aragerði við Hafnargötu 15 í Sveitarfélaginu Vogar. Boðið verður uppá pylsur og svalandi drykk á milli 13 - 15 handa öllu sem koma.
1. maí – Látum í okkur heyrast !
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.
Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.
ALLIR VELKOMNIR!
Aksturslýsing:
Fyrstu hjólin munu safnast saman við mót Bankastrætis og Laugavegar og þannig mynda röð eftir Laugaveginum. Búist er við á milli 600-1000 mótorhjólum svo að ef það fer að teygjast á hópnum er hægt að beina nokkrum hjólum upp á Skólavörðustíg. Mæting hjólanna er á milli 10:30 og 11:15 og mun keyrslan renna af stað stundvíslega kl 11:30. Ekið verður niður Bankastrætið og beygt til vinstri Lækjargötuna og svo til hægri inn Vonarstrætið. Ekin er Suðurgatan til vinstri og eftir henni að hringtorginu á Hringbraut sem verur lokað tímabundið. Hringbrautin er ekin að Bústaðavegi og Bústaðavegur að Kringlumýrarbraut. Kringlumýrarbraut er ekin að brúnni á Arnarneshæð þar sem ekið er til vinstri eftir Arnarnesvegi gegnum Garðabæ að nýju Reykjanesbrautinni. Loks er ekið eftir Reykjanesbrautinni að slaufunni við kauptún og endar keyrslan fyrir utan Kauptún
Síðastliðinn fimmtudag var farið í hina árlegu hópkeyrslu upp á Akranes. Veðurguðirnir voru búnir að vera að hóta okkur að vera með hálf leiðinlegt veður en þegar að fimmtudagsmorguninn rann upp var sól í heiði og fínasta veður fyrir utan að það var kalt. Þrátt fyrir kuldann mætti fjöldinn allur af hjólum að Select á Vesturlandsvegi þaðan sem haldið var af stað fyrir Hvalfjörðinn. Ferðin upp á Skaga gekk alveg ljómandi vel og komum við þangað rétt fyrir klukkan 14 en stoppað hafði verið áður að Ferstiklu eins og venjan er. Upp á Akranesi var farinn smá hringur um bæinn áður en stoppað var við veitingastaðinn Galito þar sem boðið var upp á kaffi og með því. Um þrjúleytið var svo haldið af stað aftur í bæinn og fóru Árni Friðleifsson og félagar hans í lögreglunni fyrir hópnum og sáu til þess að ferðin gengi greiðlega fyrir sig. Að venju var svo endað við Fíladelfíu þar sem slysavarnarkonur buðu upp á kaffi og endaði svo dagskráin á mótorhjólatónleikum.
Sniglar vilja þakka Trúboðum og Skuggum fyrir samstarfið við skipulagningu dagsins. Einnig viljum við þakka GWRRA fyrir að leiða keyrsluna og öllum þeim sem komu með í keyrsluna eða komu að einhverju leyti að þessum fína degi.