Fimmtudagur, 22. September 2011 15:28

Þingvallavegur!

Vegna klæðingarvinnu á Þingvallavegi við Kjósaskarðsvegamót er enn töluvert steinkast á kaflanum. Þar sem þetta er vinsæl mótorhjólaleið viljum við benda hjólafólki á að fara sérstaklega varlega þarna.

 

Þá er nýbúið að klæða kafla á Suðurlandi og Snæfellsnesi og er rétt að sýna sérstaka varkárni þar líka. Sjá nánar á www.vegagerdin. is

Birt í Forvarnir
Þriðjudagur, 09. Ágúst 2011 09:42

Endum rúntinn heima

Sniglar í samstarfi við Vegagerðina og Umferðasrstofu hafa reist sex skilti við þjóðveginn með áletruninni „Endum rúntinn heima“. Ætlunin er að ná til il bifhjólafólks á ferðinni og hvetja til nærgætni og heilbrigðrar skynsemi við akstur bifhjóla um þjóðvegi landsins. Öll viljum við enda skemmtilegan rúnt slysalausan heima. Skiltin eru á tveim stöðum á landinu, við borgarmörkin eða nánartiltekið við Suðurlandsveg, Vesturlandsveg, Reykjanesbraut, Þingvallaveg og hinsvegar við Akureyri á leiðinni út úr bænum í suður og austur. Skiltin eru fyrsti hluti verkefnisins „Endum rúntinn heima“.
Birt í Forvarnir
Miðvikudagur, 13. Júlí 2011 16:41

Endum rúntinn heima!

Tvö skilti til viðbótar hafa verið sett upp, annars vegar á Mosfellsheiði, rétt eftir að farið er framhjá Gljúfrasteini á leið til Þingvalla og hins vegar á Suðurlandsvegi milli Nesjavalla og Bláfjalla afleggjara. Skiltin eru þá orðin fimm sem upp eru komin en verða sex þegar uppsetningu er lokið í sumar. Skiltin eru hluti af forvarnarstarfi Snigla og er ætlað að höfða til bifhjólamanna sem og annara vegfarenda um að fara varlega á rúntinum og snúa heil heim !

Birt í Forvarnir
Miðvikudagur, 13. Júlí 2011 09:53

Blæðandi malbik við Egilsstaði

Ábending hefur borist um að í nágrenni Egilsstaða sé "blæðandi" malbik og hefur Vegagerðin verið að sáldra efni yfir þau svæði. Yfirborðið er því laust í sér og bendum við því hjólafólki að fara varlega á þessu svæði.

Birt í Sniglar
Mánudagur, 30. Maí 2011 15:32

Vegavinna undir Hafnarfjalli

Unnið er að lagningu slitlags undir Hafnarfjalli. Framkvæmdin nær frá Fiskilæ yfir að Hafnará.

Þeir sem fara þarna um þurfa því að hafa varann þar sem að lausamöl er mikil þarna eins og fylgir alltaf svona framkvæmdum.

Birt í Forvarnir
Mánudagur, 09. Maí 2011 22:55

Endum rúntinn heima – Akureyri

 

Í dag voru sett upp tvö „Endum rúntinn heima!“ skilti á Akureyri. Annað skiltið er staðsett rétt austan við Leirunesti og hitt er sunnan við Hlíðarbæ á leiðinni suður.  En skiltin eru hluti af umferðarátaki Snigla í samvinnu við Vegagerðina og Umferðarstofu. Sniglar þakka vegagerðinni á Akureyri fyrir aðstoðina við uppsetningu skiltanna. Uppsetningu fyrsta áfanga skiltanna mun ljúka í maí.

 

Birt í Forvarnir

VÍS býður öllum viðskiptavinum sínum sem tryggja bifhjól að skoða gjaldfrjálst fræðslumyndbandið Mótorhjól 1  á svæðinu Mínar tryggingar á vis.is. Þar er farið yfir hvernig bifhjólafólk getur aukið öryggi sitt í umferðinni. Fjallað er um tæknilegar upplýsingar varðandi mótorhjól, fatnað og annan búnað ökumanna og æfingar fyrir byrjendur sem lengra komna. Jafnframt er farið yfir námsferil, prófkröfur og hvernig aka á af sem mestu öryggi hvort heldur þú ert nýliði eða lengra kominn.Enginn bifhjólaökumaður ætti að láta þetta fram hjá sér fara. Sigurður Jónasson og Stefán Sæmundsson gerðu myndbandið sem fæst á bensínstöðvum N1.

Birt í Tryggingavakt
Miðvikudagur, 04. Maí 2011 22:36

FORVARNARDAGUR MC. NORNA

FORVARNARDAGUR MC. NORNA OG UNGLIÐADEILDAR
LAUGARDAGINN 7. MAÍ 2011
STAÐSETNING: BÍLAPLAN ÍSLANDSPÓSTS NORÐAN VIÐ RAFEYRI, NORÐURTANGA 5, AK.

FYRIR NORNIR OG UNGLIÐA:

KL. 9.30 HITTUMST Á RAFEYRI, KAFFI OG SMÁ HRESSING!

KL. 9.55 FÆRUM OKKUR YFIR Á SLÖKKVISTÖÐINA.

KL. 10-11 SKYNDIHJÁLPARNÁMSKEIÐ; LEIÐBEINENDUR VERÐA PÉTUR R. TRYGGVASON OG VIGFÚS Ó. BJARKASON. Tilkynnið þátttöku með emaili á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða sms á 866-2796.

KL. 11-12 ÆFINGABRAUT UNDIR HANDLEIÐSLU VALDEMARS Þ. VIÐARSSONAR ÖKUKENNARA.

KL. 12 FJÖLSKYLDUR, VINIR OG VANDAMENN, AÐRIR HJÓLAKLÚBBAR OG VELUNNARAR ERU HJARTANLEGA VELKOMIN ÞVÍ ÞÁ VERÐA GRILLAÐAR PYLSUR Í BOÐI MC. NORNA, NORÐLENSKA, KRISTJÁNSBAKARÍS OG DRYKKIR Í BOÐI VÍFILFELLS----á meðan birgðir endast ;-)

 

VÆNTANLEGIR ERU Á PLANIÐ SJÚKRABÍLL OG SLÖKKVIBÍLL FYRIR UNGA FÓLKIÐ OG AÐRA SEM VILJA SKOÐA OG SPJALLA VIÐ ÞÁ ÖKUÞÓRA. (Ef ekki kemur til útkalls!)
ÆFINGABRAUTIN VERÐUR OPIN Í SMÁSTUND FYRIR ÞÁ SEM VILJA RENNA ÆFINGAHRING.
SAGA MÓTORHJÓLAKLÚBBSINS MC. NORNA VERÐUR TIL AFLESTRAR OG ENDILEGA SPYRJIÐ LÍKA ;-)
AUK ÞESS SEM FLEIRA FRÓÐLEGT VERÐUR TIL SÝNIS.

 

VONUMST TIL AÐ SEM FLESTIR KOMI OG GLEÐJIST MEÐ OKKUR ÞENNAN LAUGARDAG Í “NORÐAN”-BLÍÐU AUÐVITAÐ ;-)

MC. NORNIR OG UNGLIÐADEILD

Birt í Hjólamenningin
Miðvikudagur, 04. Maí 2011 14:22

Forvarnardagur Snigla 2. maí 2011

Forvarnardagur Snigla og árleg hópkeyrsla var farin að kveldi 2. maí eftir talsverðar veðurfars hrakfarir, en landinn vaknaði við alhvíta jörð að morgni 1. maí. Áætla má að tæplega 600 hjól hafi tekið þátt í hópakstrinum frá Laugarvegi að Kirkjusandi. Á Kirkjusandi voru veitingar í boði, keppt í vespuþrautum og fleira.

Sniglar þakkar öllum sem tóku þátt, þeim sem studdu við bakið á okkur í þessari framkvæmd sem og öllum þeim sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóginn.

Eftirtaldir aðilar studdu við bakið á Forvarnardegi Snigla 2011

OJ&K
Ísmar
Kex Smiðjan
Seglagerðin Ægir
Lögreglan í Reykjavík
Reykjarvíkurborg
Ökukennara félagi Íslands

Ef þú tóks myndir og á tengil í myndasíðu með myndum frá deginum, sendu okkur hann þá endilega á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við komum honum á framfæri.

Tenglar í myndasíður:

Forvarnardagur Snigla 2. maí 2011

Fréttir á Stöð 2

YouTube:

 




 

Birt í Sniglar
Mánudagur, 02. Maí 2011 12:17

Hópkeyrsla í kvöld

Hópkeyrslunni, sem átti að fara fram í gær, hefur verið fundinn tími kl 20 í kvöld.

Safnast verður saman á laugarveginum klukkan 19:30 og röð mynduð frá mótum Bankastrætis og Laugarvegar, keyrslan sjálf hefst Kl 20:00 og verður ekið niður Bankastræti, til vinstri Lækjargötu og svo til hægri Vonarstrætið meðfram Tjörninni. Suðurgata er ekin í suður og svo Hringbrautin niður að JL húsinu. Þá er ekinn Grandinn niður að Geirsgötu sem er ekin meðfram höfninni niður á Sæbraut. Sæbraut er að lokum ekin út að Íslandsbanka og komið inn á Laugarnesveginn áður en ekið er inn á Sundlaugarveg og inn á Kirkjusand.

Viljum við hvetja hjólafólk til að koma og sýna að við látum ekki veðurguðina slá okkur útaf laginu.

Birt í Sniglar
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði