Sunnudagur, 14. Febrúar 2010 22:29

Aðalfundur snigla 2010

Aðalfundur snigla var haldinn laugardaginn 13 febrúar 2009 í fóstbræðraheimilinu á langholtsvegi.  Góð mæting var á fundinn en á milli 60 – 70 manns mættu. Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf var á fundinum haldin kynning á hugsanlegri aðild Snigla að FEMA, og samþykkt var stefnuyfirlýsing fyrir Samtökin.  Á fundinum var kjörin ný stjórn og er hún eftirfarandi, talin frá vinstri á myndinni

 

#0234 – Jóhann F Jónsson – Varamaður
#1831 – Bergur Kristinsson – Meðstjórnandi
#1837 – Gunnar Gunnarsson – Formaður
#1049 – Kristrún Tryggvadóttir – Meðstjórnandi
#2033 – Eva Ólafsdóttir – Meðstjórnandi
#1952 – Hrönn Bjargar Harðardóttir – Meðstjórnandi
#0979 – Jónatan Vernharðsson – Varamaður
#0946 – Sigurjón Andersen – Varamaður (Er ekki á myndinni)

 


Á myndinni (til hægri) eru einnig kjörnir skoðunarmenn reikninga þau

 


#2178 – Jens Ágúst Jónsson
#1535 – Svandís Steingrímsdóttir

 


Fundargerð ásamt gögnum birtum á fundinum eru félagsmönnum aðgengileg undir sniglar > fundargerðir aðalfunda.

 

Birt í Sniglar
Sunnudagur, 31. Janúar 2010 09:04

Aðalfundur Snigla, er hann rétt boðaður?

Fyrir nokkrum dögum fékk ég boð um aðalfund Snigla, en það er svo sem ekkert nýtt fyrir mér því þetta gerist víst árlega. Nokkrum dögum seinna kom svo frétt um að formaðurinn hefði sagt af sér og þar af leiðandi komin nýr formaður og stjórn.

Í lögum Snigla segir að stjórn boði til aðalfundar með 20 daga fyrirvara, en nú er komin nýr formaður og stjórn í Snigla og því spyr ég hvort löglega sé til aðalfundar boðað? Er það ekki nýr formaður sem á að boða til fundar, en það eru innan við tuttugu dagar fram að aðalfundi frá setningu nýs formanns í stjórn.

Í fundarboðinu kom fram að ræða ætti hugsanlega um aðild Snigla að FEMA. Ég hefði viljað sjá stjórn Snigla virka betur hér heima í þeirri hagsmunabaráttu sem hér þarf að vinna á Íslandi áður en menn fari að ganga til liðs við FEMA og stunda dæmigerða skriffinnsku sem er stjórnað af Bretum, Þjóðverjum og Frökkum rétt eins og allur EES og EB pakkinn, en þar hafa þessi þrjú lönd komið sínum mönnum fyrir í allar nefndir og ráð og sameinast um að kúga og drottna. Öll önnur Efrópuríki verða að hlíða þessum háu herrum sem virðast (fyrir mér) öllu ráða sama hvað hver segir.

Er þetta ekki bara peningasóun á pening sem annars mætti nota hér heima í hagsmunabaráttu fyrir Íslenskt hjólafólk?

Ég get ekki séð að almennur hjólamaður sé neitt bættari að vera í FEMA.

 

Hjörtur Líklegur #56.

Birt í Sniglar

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði