Árið 2007 var samþykkt viðbót við lög nr. 50/1987, umferðarlögin, sem skyldar bifhjólafólk til þess að vera í hlífðarfatnaði á hjólum sínum. Í lögunum stendur „Þá skal hver sá sem er á bifhjóli nota viðurkenndan lágmarkshlífðarfatnað ætlaðan til slíkra nota“. Ráðherra er síðan ætlað að skipa nefnd sem á að skilgreina hvað er lágmarks hlífðarfatnaður. Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, áttu stóran þátt í því að þessi lög voru sett en tilgangurinn var sá að stuðla að því að fá niðurfellda tolla af hlífðarfatnaði á grundvelli þess að um öryggisbúnað væri að ræða. Þrátt fyrir góðan tilgang hefur ekkert annað komið út úr þessari viðleitni Snigla, til að fá verð á hlífðarfatnaði lækkað, en að nú sitjum við uppi með lög sem eru mun strangari en víðast hvar annarstaðar en áfram eru tollarnir þeir sömu.
Frá því að þetta ákvæði fór inn í lögin hefur verið deilt um það. Bifhjólafólk hefur sett sig alfarið á móti þessu ákvæði og vill það út úr umferðarlögunum og er núverandi umferðarnefnd Snigla þar engin undantekning. Ástæður þess að bifhjólafólk hefur verið á móti þessu ákvæði eru margar. Ein helstu rök þeirra er að með þessu ákvæði er verið að setja bifhjólafólki á Íslandi mun strangari reglur en tíðkast í Evrópu og þó víðar væri leitað. Í Evrópu miðast lög um hlifðarfatnað bifhjólafólks við það að skylda atvinnuökumenn bifhjóla til að vera í viðurkenndum hlífðarfötum. Noregur setti í lög hjá sér skildu um notkun hlífðarfatnaðar en drógu það svo til baka og eru nú lög þeirra til samræmis við önnur lönd Evrópu.
Viðmiðið við Evrópu er ekki það eina sem sett hefur verið út á í sambandi við þessi lög. Síðastliðið haust gerðu Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, könnun á hlífðarfötum hjólafólks. Var könnunin gerð bæði með því að fá hjólafólk til að svara nokkrum spurningum á vefsíðuni hjólafólk.is og einnig var farið í verslanir og hlífðarfatnaður skoðaður. Í ljós kom að einungis um 25% hlífðarfatnaðar var merktur með Evrópustaðli, svokallaðri CE merkingu. Engu að síður var um að ræða fatnað frá þekktum og virtum framleiðendum á borð við Spidi, Rukka og Hein Gericke. Með því að gera kröfu um viðurkenndan lágmarkshlífðarfatnað er því verið að takmarka valið hjá bifhjólafólki alveg gríðarlega með tilheyrandi kostnaði sem því fylgir.
En það eru ekki bara lagaleg og fjárhagsleg rök fyrir afstöðu bifhjólamanna. Eins og allir vita liggur Ísland á norðurhveli jarðar og það frekar norðarlega. Hitastigið er því oftar en ekki þannig að nauðsynlegt er að búa sig vel ef það á að njóta ferðarinnar en ekki vera skjálfandi af kulda í hvert sinn sem stoppað er. Fyrir vikið er bifhjólafólk oftar en ekki í þykkum hlífðarfatnaði því fötin verja ekki eingöngu gegn slysum heldur einnig fyrir veðri og vindum.
En afhverju ekki bara að hafa notkun hlífðarfata lögbundna? Fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta eðlileg spurning. Einu upplýsingarnar sem þeir hafa eru úr blöðunum þegar þau fjalla um alvarleg bifhjólaslys. En það gefur ekki endilega rétta mynd af vandamálinu. Málið er nefninlega ekki alveg svona einfalt. Hlífðarfötin verja vissulega líkamann í slysum og koma í veg fyrir að húðin tætist þegar að bifhjólamaðurinn rennur eftir götunni eftir að hafa fallið af hjólinu. En stóra hættan felst ekki endilega í því að detta. Stóra hættan er þegar og hvernig viðkomandi stöðvast. Ef bifhjólamaður dettur af hjólinu og rennur á bakinu þar til hann stöðvast eru mjög miklar líkur á því að hann standi upp nánast óskaddaður ef hann er í hlífðarfötum. Hins vegar ef hann stoppar mjög snögglega, t.d. á stólpa fyrir vegrið eða ljósastaur þá eru mun meiri líkur á því að hann slasist alvarlega og breytir þá hlífðargallinn litlu. Það er því ekki endilega fallið sem skaðar heldur hvernig þú stöðvast eftir fallið.
Hugsa þarf vegakerfið fyrir alla sem um það fara. Mörg lönd hafa farið út í að setja sér svokallaða núllsýn þar sem þau setja sér það markmið að útrýma öllum dauðaslysum og alvarlegum slysum. Noregur er eitt þessara landa og hefur vegagerðin þar, í samvinnu við NMCU, Norwegian Motorcycle Union, útbúið handbók um hönnun vega sem eru örugg fyrir bifhjólafólk. Í þessari handbók er farið yfir það hvað ber að varast við vegahönnun og komið með hugmyndir að úrbótum eins og t.d. í sambandi við staðsetningu umferðarskilta, vegriða og þar fram eftir götunum.
Það að lögbinda notkun hlífðarfatnaðar hjá bifhjólafólki er því svolítið að byrja á vitlausum enda. Bifhjólafólk er almennt mjög meðvitað um öryggi sitt og er því upp til hópa mjög duglegt við að nota hlífðarföt. Þetta er svolítið eins og að skylda endur til þess að vera fiðraðar, hljómar kannski skynsamlegt en er í raun algjör óþarfi. Með því að draga úr líkum á því að bifhjólamaður lendi á fyrirstöðu sem stoppar hann eftir að hafa fallið af hjólinu er hægt að draga mun betur úr hættunni á alvarlegum slysum heldur en með setningu laga um notkun hlífðarfatnaðar. Það er því eðlileg krafa að stjórnvöld byrji á réttum enda í stað þess að setja lög sem eru ekki í neinu samræmi við lögin í nágrannaríkjum okkar.
Þá eru nýju umferðarlögin loksins komin fyrir alþingi íslendinga og fara nú í umræðu á næstu vikum og mánuðum. Þótt tekið hafi verið tillit til margra þátta sem Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar gerðu athugasemdir við standa enn hlífðarfataólögin nánast óbreytt eftir að ráðuneyti samgöngumála dró í land og bætti inn ákvæði um hlífðarfatnað "eftir því sem við á" svo vitnað sé beint í 76. greinina. Þetta er Sniglum sem og öðru mótorhjólafólki mikil vonbrigði enda var búið að taka þetta ákvæði úr lögunum í seinni drögum þeirra á haustdögum. Til að bæta gráu ofan á svart kom önnur veigamikil breyting gagnvart mótorhjólafólki inn á síðustu stundu en það er hækkun á ökuleyfisaldri fyrir mótorhjól úr 17 í 20 ár! Sniglar munu að sjálfsögðu mótmæla þessum áformum eins og sjást má núna á næstu dögum og vikum. Það er einróma álit stjórnar Snigla og umferðarnefndar samtakanna að hér sé verið að ganga mun lengra en gert er í þeim löndum sem við miðum okkur venjulega við í þessu sambandi, hvort sem átt er við ákvæði um hlífðarfatnað eða lágmarksaldur. Loðið orðalag um túlkun á notkun hlífðarfatnaðar veldur líka áhyggjum. Það er heldur ekkert launungarmál að þótt slysum á mótorhjólum hafi fjölgað hefur það ekki gert eins hratt og mótorhjólunum sjálfum hefur fjölgað og því ekkert sem réttlætir slíka skerðingu á réttindum mótorhjólafólks eins og þessi lög gera.
Umferðarnefnd Snigla hefur sótt um tvo rannsóknarstyrki til Vegagerðarinnar vegna 2010 fyrir hönd Bifhjólasamtaka Lýðveldisins. Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög til rannsóknaverkefna, en það er rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun. Verkefnin tvö sem um ræðir eru annars vegar Bifhjól, vegbúnaður og öryggi, og hins vegar um Núllsýn í bifhjólaslysum og útgáfu handbókar fyrir vegagerð þar sem tekið verður sérstakt tillit til öryggis bifhjólafólks. Norsku mótorhjólasamtökin NMCU hafa tekið upp þessa sýn og opnað meðal annars fyrsta veginn í heiminum sem kalla má "öruggan" fyrir mótorhjólafólk og vænta má samstarfs við nágranna okkar í þessum efnum. Tilkynnt verður hverjir hljóta styrki í marsbyrjun.
Ökumaður bifhjóls meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hann féll á hjóli sínu í Hafnarfirði í gærkvöldi. Hann var í hópi vélhjólamanna þegar hann féllog er óhappið ekki rakið til hraðaksturs.
Margir vélhjólamenn hafa dustað rykið af vélfákum sínum síðustu dagana, enda ákjósanlegt færi í blíðviðrinu.
Hraðahindranir í Suðurgötu á leiðinni út á Skeljanes eru sérstaklega varasamar sér í lagi fyrir bifhjólafólk.
allangan tíma hefur árangurslaust verið reynt að fá þá starfsmenn Reykjavíkurborgar sem sjá m.a. um hraðahindranir til þess að færa hraðahindranirnar á Suðurgötu sem eru til móts við flugvallarveginn.
Þetta hefur ekki tekist – fyrr en núna –
Fyrir nokkrum dögum var rætt við Gísla Martein Baldursson en þessi hluti heyrir undir hann –
Það er skemmst frá því að segja að vestari hindrunin verður flutt og verður það gert öðru hvoru megin við áramót.
Verið er að skoða flutning á hinni.
Fram að þeim tíma – endilega farið varlega –
kv Hrósi #1999