Fimmtudagur, 24. Júní 2010 21:48

Á hverju lendirðu?

Samkvæmt evrópskri rannsókn á 921 mótorhjólaslysi eru um það bil 60% líkur á að þú lendir í árekstri við bíl ef þú ert svo óheppinn að lenda í árekstri á mótorhjóli. Könnunin skoðaði hvað það var sem að mótorhjól lentu helst í árekstri við og voru niðurstöðurnar eftirfarandi: Bíll 60%, vegrið 9%, atvinnubílar 8,4%, staurar og tré 8%, annað mótorhjól 6,9%, ökutæki í stæði 2,7%, reiðhjól eða gangandi vegfarandi 2,1% og dýr 0,3%. Rannsóknin var gerð á slysum á Ítalíu, Hollandi. Þýskalandi, Frakklandi og Spáni. Spurning hvort niðurstöður hérlendis yrðu ekki svipaðar.

Birt í Forvarnir
Mánudagur, 10. Maí 2010 20:24

árekstur mótorhjóls á uþb. 50 Km/Klst

Droppið á hjólinu sem var Honda CB 250 1997 árgerð frá ökuskólanum Aðalbraut var úr 15 metra hæð og mun það jafngilda amk 50 km hraða á klst. Búið var að taka alla vökva eins og bensín af hjólinu til að minnka áhættu og einnig fjarlægja gler úr ljósum oþh. Athyglisvert var að sjá hvernig höggið beygði grind hjólsins aftur þannig að afturhluti bensíntanks beyglaðist. Einnig brotnaði felga í tvennt og tvær mótorfestingar gáfu sig.

Fallið var myndað á tvær háhraða myndavélar og á eina vél staðsetta í kranabómu. myndirnar verða notaðar við kennslu og í fræðsluefni.

Myndskeið úr Kranabómu og myndir af hólinu eru hér fyrir neðan:

 

Birt í Forvarnir

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði