Sigurlaug Pálsdóttir Snigill #249 verður jarðsungin klukkan 13.00 í dag í Bústaðarkirkju. Lauga hefur verið lengi í Sniglunum og verið dugleg að mæta á uppákomur Snigla svo sem landsmót og fleira. Lauga giftist Guðna #17 1987 og eiga þau eina dóttur saman, en fyrir átti Lauga son. Lauga hafði í nokkur ár barist við krabbamein og lauk þeirri baráttu á sunnudag fyrir viku á lokadegi landsmóts bifhjólafólks. Laugu verður sárt saknað úr röðum Snigla og verður hennar skarð seint fyllt. Stjórn Snigla fyrir hönd annara Snigla bera fjölskyldu hennar samúðarkveðjur frá Sniglum og öðru mótorhjólafólki.