Auka leturstærð
Í tilefni af 25 ára afmæli samtakanna hefur verið ákveðið að gefa út SÖGU SNIGLA í bókarformi . Hópur góðra félaga annast þessa vinnu og sífellt bætast fleiri í hópinn sem eiga gögn frá fyrri tíð og vilja leggja málinu lið. Þessi bók verður nákvæmlega það sem nafnið segir til um SAGA SNIGLA. Allt verður rakið aðdragandinn að stofnun samtakanna – þróunin – uppbyggingin - . Ennfremur verða erindi frá ýmsum þeim sem hafa sett svip sinn á samtökin – skrautlegir einstaklingar sem ekki fóru alltaf troðnar slóðir. Baráttufólk sem vildi réttindi fyrir hjólafólk – harðsnúnir einstaklingar sem stóðu keikir á hverju sem gekk og hvikuðu hvergi. Þetta er saga fólksins sem „betri borgarar“ í vanþekkingu sinni leit á sem glæpamenn í leðurgöllum – stórhættulega einstaklinga sem áttu sér varla tilverurétt. Baráttan skilaði því að í dag erum við fólk – í augum flestra – það er ekki sjálfgefið í dag að það megi keyra okkur niður. Á þessum árum sem liðin eru frá stofnun Snigla hafa verið stofnaðir margir hjólaklúbbar og eru þeir taldir í tugum. Margir bikerar eru í 2 eða fleiri klúbbum og tngslin því sterkari. Í bókinni sem rekur sögu samtakann verður leitast við að gefa heildstæða mynd af sögunni og munu 2 félagar annast textaskrifin að mestu þannig að heildarmyndin verði sem skýrust. Myndir – frásagnir og viðtöl ásamt aragrúa mynda koma frá mörgum – mjög mörgum.
Einnig ætlum við að setja á laggirnar „Sögusafn Snigla“.
Þar þurfa líka margir að koma að. Beiðnin til þín er einföld – ef þú átt gripi sem tengjast sögu Snigla þætti mér vænt um að fá þá til okkar – hvort sem er til þess að setja á safnið – taka myndir af þeim eða á einn eða annan hátt að koma þeim á framfæri í bókinni eða á safninu. T.d. þá vantar stóra gula beltissylgju. Blátt og svart eru til. Hverskyns orður + verðlaun frá Landsmótum væru vel þegin. Hverskyns bæklingar – aðgöngumiðar og plaggöt verða líka á safninu. Sagan nær til 1.04.09 þannig að við getum öll lagt okkar af mörkum.
Saga Snigla er merkileg saga – hluti af sögu þessarar þjóðar og umferðamenningar hennar – gerum henni því góð skil í bók og safni.
Þeir sem vilja lána eða gefa hluti á safnið geta haft samband við Stebbu, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - GSM 865-1448 (eftir kl 18) eða Jómbu, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.