Landsmót hefur verið haldið ár hvert fyrstu helgina í júlí síðan 1987.
Það eru hins vegar ekki margir sem vita það að fyrsta Landsmót Snigla var haldið í Húsafelli dagana 29. - 31 júní árið 1984. Það mættu mjög fáir á þetta fyrsta Landsmót svo fáir að varla var hægt að deila niður verðlaunapeningunum sem áttu að vera í verðlaun fyrir hinar ýmsu keppnisgreinar sem keppa átti í. Tilnefndur var meðal annars mesti mótorhjólatöffarinn og fl. á þessu Landsmóti. Það er samdóma álit þeirra sem þarna voru að veðrið var svo gott að ekki var hægt að gera neitt nema að flatmaga í sólinni í sem allra fæstum fötum.
Í lok júní 1987 var svo haldið Landsmót í Húnaveri og var eingöngu ætlað Sniglum, en ef aðrir slæddust á svæðið varð fullgildur Snigill að bera ábyrgð á viðkomandi. Á þetta Landsmót mættu yfir 120 gestir og þótti fjöldinn gífulegur. Á þessu landsmóti var keppt fyrst í Snigli, en það er að fara braut sem er 16 metra löng og 1 og 1/2 metri á breidd á sem lengstum tíma án þess að stíga niður fæti á meðan brautin var ekin. Þessi keppnisgrein er í raun þjóðaríþrótt Snigla og er til skrá yfir besta tíma í braut sem er 1:07 og er methafinn Einar Hestur sett á Landsmóti í Trékyllisvík 1992 og er meðalhraði sigurvegara því 0,886 km á kl.. Einnig var keppt í íþróttum eins og Zippo-mundun, hreðjaglímu, tegundareiptogi og fl. Verðlaun fyrir sigur í hreðjaglímu hefur verið mjög eftirsóttur gripur er nefnist "Pungbindi lýðveldisins" og er leðurpungbindi með harðri skel fyrir hreðjarnar.
Árið eftir var einnig haldið Landsmót í Húnaveri og var gestafjöldi nú tæplega 200. Á þessu Landsmóti var súpan fræga sem matreidd er á öllum Landsmótum fyrst matreidd af Heiðari 10 stórbryta Snigla. Heiðar sá æ síðan um að elda ofan í Snigla sína lands frægu súpu á föstudagskvöldum þar til hann lést 02.07.06. Það er óhætt að fullyrða að enginn hafi matreitt ofan í jafn marga mótorhjólamenn og hann Heiðar.
Næstu ár var verið í Húnaveri, en 1991 var breytt til og Landsmót var haldið á Skógum undir Eyjafjöllum. Á Landsmótinu að Skógum var í fyrsta sinn fenginn aðkeyptur matur ásamt matargerðarmanni til að sjá um hann, en öll árin áður höfðu Sniglar séð sjálfir um að grilla sjálfir Landsmótssteikina. Það var met aðsókn á þetta Landsmót og komu yfir 300 gestir á það mót. Eftir Landsmótið á Skógum hefur Landsmót flakkað um landið og verið nánast í öllum landshlutum nema á norðausturlandi og ekki nær Reykjavík en 100 km.
Á 10 ára afmælinu var Landsmót haldið í Húnaveri og var það fjölmennasta Landsmót sem haldið hefur verið. Á það Landsmót mættu rétt tæplega 500 gestir. Á síðustu 10 árum hafa gestir á Landsmótum verið á bilinu 200-300 í flestum mótunum á misjöfnum stöðum í mis góðum veðrum.



