Njáll Gunnlaugsson

Njáll Gunnlaugsson

Vefslóð: Senda vini: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Þriðjudagur, 31. Janúar 2012 22:49

Venjuleg vegrið dauðagildra fyrir mótorhjólafólk

Fyrir tilstilli FEMA og fjögurra Evrópuþingmanna sem aka sjálfir mótorhjólum hefur ESB nú gefið út viðbót við umferðaröryggisáætlun sína um hættur sem venjuleg vegrið skapa mótorhjólafólki. "Evrópuþingið hvetur lönd ESB til að biðja umferðaryfirvöld í sínu landi að hanna vegumhverfi þannig að það skapi ekki hættu fyrir mótorhjólafólk. Hefðbundin vegrið sem notuð eru víða í Evrópu eru dauðagildrur fyrir mótorhjólafólk og er nauðsynlegt að lönd ESB bregðist því skjótt við, og skipti um hættulega kafla samkvæmt staðli EN 1317, til að minnka hættu fyrir alla vegfarendur. Einnig er bent á hættuna sem að tjörumalbik veldur mótorhjólum" segir í viðbótinni. FEMA hefur því í framhaldinu hvatt þingmenn ESB til að fylgja þessu eftir og samþykkja nýjan staðal fyrir mótorhjólavænni vegrið.
Fimmtudagur, 19. Janúar 2012 23:39

Bretar taka afstöðu gegn frumvarpi ESB

Stefnubreyting hefur orðið í Bretlandi gagnvart frumvarpi ESB sem bannar breytingar eigenda á mótorhjólum sínum og gerir einnig ABS að staðalbúnaði í öllum mótorhjólum. Varamaður samgönguráðherra þar í landi, Mike Penning þingmaður, hefur orðið sér út um stuðning samgönguráðuneytisins til að berjast gegn frumvarpinu. Í viðtali við tímarit BMF, Motorcycle Rider sagði Penning: "Þetta frumvarp er ekki gott fyrir okkur og ég hef leyfi ráðuneytis míns til að berjast gegn því." Hann sagðist ennfremur muna kjósa gegn frumvarpinu ef það næði inn á breska þingið. Bretum virðist uppsigað við flest sem kemur frá ESB um þessar mundir og er þetta bara ein birtingarmynd þess, en mótmæli gegn þessu frumvarpi hafa verið sérlega áberandi í Bretlandi fyrir tilstilli BMF og MAG-UK sem eru bæði aðilar að FEMA. Penning er mótorhjólamaður sjálfur, byrjaði sem mótorhjólasendill hjá hernum og keyrir núna Ducati Monster og Royal Enfield. Ísland hefur ekki sömu möguleikana til að mótmæla þessu frumvarpi þar sem Ísland er ekki aðili að ESB. Sem EES land þarf Ísland þó að taka löggjöfina inn, verði hún samþykkt á Evrópuþinginu.
Laugardagur, 14. Janúar 2012 00:55

Nýjar reglur um bifhjólapróf í Bretlandi

Í dag var tilkynnt um hvernig aldurskiptingu á bifhjól verður háttað í Bretlandi frá og með næsta ári. Það er athyglisvert fyrir okkur hér á Íslandi því að Bretland er eitt af fáum löndum sem miðar við 17 ára aldurinn eins og við. Breytingin verður á þann hátt að frá 17-19 ára verður hægt að fá réttindi á flokk A1 sem eru 125 rsm hjól upp að 15 hestöflum. Við 19 ára aldurinn er hægt að taka próf á hjól upp að 47 hestöflum, sem er hærri hestaflatala en áður var leyfð fyrir A2 flokk sem var áður í 35 hestöflum. Taka þarf A2 prófið á hjól sem er 395 rsm og 33 hestöfl að lágmarki. Það er því fyrst mögulegt að taka full réttindi við 21 árs aldurinn ef búið er að taka stigskiptingu réttinda, en þeir sem hafa náð 24 ára aldri geta tekið full réttindi strax. Þeir verða þá að gera það á mótorhjól sem er 595 rsm að lágmarki og 54 hestöfl. Til að hækka sig um flokk þarf að öllum líkindum að taka próf, eða lágmarkstíma sem þýðir að þeir sem byrja 17 ára sjá fram á að taka mótorhjólaprófið 3svar sinnum. Það veldur talsverðum áhyggjum hvaða áhrif þetta hefur á nýliðun mótorhjólafólks í Bretlandi segir Paul Dickinson, formaður sambands mótorhjólakennara í Bretlandi. "Það mun verða vandamál að skýra út fyrir fólki hvernig kerfið virkar þegar það hringir til að forvitnast, og því hef ég áhyggjur af því að það muni fæla frá." Áhugavert verður að sjá hvaða leið verður farin hér á landi, en samkvæmt síðasta umferðarlagafrumvarpi var lagt til að A1 flokkurinn byrjaði við 18 ára aldur. Það er einu ári hærra en gert verður í Bretlandi. Sniglar hafa að sjálfsögðu mótmælt því harkalega, meðal annars með undirskriftarsöfnun hér á sniglar.is

Þriðjudagur, 10. Janúar 2012 00:59

Spekingar spjalla

Fundurinn næsta miðvikudagskvöld, 11. janúar verður helgaður Vélhjólafjelagi Gamlingja. Munu nokkrir Gamlingjar mæta á svæðið og ausa úr viskubrunnum sínum yfir þá sem mæta. Búast má við skemmtilegu kvöldi og aldrei að vita nema að einhver taki myndir með sér til að skoða. Eins og venjulega byrjar fundurinn kl 20:00 og er haldinn í Skeljanesinu að vanda.
Mánudagur, 09. Janúar 2012 20:31

Frakkar neyddir í gul vesti að ári

Mótorhjólafólk í Frakklandi verður skyldað til að nota gulan lit í fatnaði sínum frá og með janúar á næsta ári. Viðbót við umferðarlögin frönsku (Le Code de la Route) segir að allir sem keyra mótorhjól yfir 125 rsm þurfi að gangast undir þetta. Flöturinn þarf að vera allavega 150 fersentimetrar á hvorri hlið og vera á efri hluta líkamans og nær einnig yfir farþega á mótorhjólum, svo og þa sem ferðast gegnum landið á mótorhjóli. Þeir sem fara ekki eftir þessum lögum þurfa að greiða sekt upp á 68€ eða um það bil 10.800 kr. Að sögn Ian Mutch frá MAG-UK eru lögin della. "Ökumaður sem sér ekki venjulega klæddan mótorhjólamann við góðar aðstæður ætti ekki að hafa ökuskírteini." Frakkar samþykktu lög árið 2008 sem skylda alla ökumenn til að hafa áberandi vesti í bílum sínum sem þeir verða að nota ef bíllinn bilar við veg.

Föstudagur, 23. Desember 2011 00:12

Mótorhjólum hleypt á strætóreinar í London

Umferðaryfirvöld í London tilkynntu í gær að mótorhjólum væri nú óhætt að nota allar strætóreinar í borginni án takmarkanna. Þetta er ákveðið eftir þriggja ára reynslutíma á ákveðnum strætóreinum sem leiddi til aukins umferðarflæðis, minni mengunar og minni ferðatíma þeirra hjóla sem mæld voru. Eini hópurinn sem hefur sett sig á móti þessu eru samtök reiðhjólafólks sem hafa sagt að þetta auki hraða mótorhjóla með aukinni hættu fyrir reiðhjólafólk. Sannleikurinn er sá að meðalhraði mótorhjóla hefur lækkað um 6,5% þar sem leyft var að aka á strætóreinum og fjöldi þeirra sem fór yfir hámarskhraða minnkaði um fimmtung. Þetta hefur verið baráttumál samtaka eins og BMF og MAG UK lengi en leyfi mótorhjóla til að nota allar strætóreinar í London tekur gildi 23. janúar nk.

Þriðjudagur, 06. Desember 2011 20:51

Kosið um hina umdeildu gerðarviðurkenningu

Neytendanefnd ESB kaus í dag um hið umdeilda frumvarp um gerðarviðurkenningu mótorhjóla. Skemmst er frá að segja að frá 2016 þurfa öll mótorhjól að verða grænni en þau eru í dag og hafa ABS hemlalæsivörn sem staðalbúnað, einnig létt hjól undir 125 rsm. Það sem flestum þykir þó alvarlegast er að frá og með 2014 verður eigendum mótorhjóla bannað að breyta eiginleikum véla sinna, og verða að láta skoða allar minniháttar breytingar sérstaklega. Enn á þó eftir að útfæra reglur þessar svo það er ekki öll von úti og mun FEMA áfram berjast gegn frumvarpi þessu og þá sérstaklega hinni umdeildu 18. grein. Að sögn Aline Delhaye, aðalritara FEMA eru sumir hlutar frumvarpsins góðir, eins og þeir sem lúta að endingu hjólanna og upplýsingagjöf. "Ef 18. greinin fer hins vegar óbreytt í gegn mun það þýða að hinar einföldu breytingar sem margir gera á hjólum sínum til að spara eldsneyti, auka þægindi eða bæta eiginleika hjólanna, verða ólöglegar. Hingað til hefur þetta ekki verið vandamál og það er engin ástæða til þess að ætla að þetta verði vandamál á morgun. Þess vegna mun FEMA áfram berjast fyrir breytingum á greininni" segir Aline. Sumir kynnu að spyrja hvaða máli einhver reglugerð hefur hér á landi, en með EES sáttmálanum skuldbindur Ísland sig til að taka upp lög ESB að mestu og þar á meðal þessi. Þótt kosning nefndarinnar sé ekki endanleg atkvæðagreiðsla sýnir hún líklega niðurstöðu Evrópuþingsins þegar kosið verður um frumvarpið snemma á næsta ári.

Þriðjudagur, 29. Nóvember 2011 21:50

Sönnun þess að undirakstursvörn virkar

Eins og sjá má á þessu Youtube myndbandi frá Þýskalandi er hér áþreifanleg sönnun fyrir hversu vel undirakstursvarnir á vegrið virka þegar óhapp verður á mótorhjóli. Eins og mótorhjólafólk á Íslandi kannast við er meðal annars verið að prófa undirakstursvörn eins og þessa á vegriðinu milli Kópavogs og Garðabæjar, og er það samstarfsverkefni Snigla og Vegagerðarinnar. Munum við fara fram á að slík vörn verði sett upp á þá kafla sem geta talist hættulegir mótorhjólafólki. Því miður spretta þó víravegrið upp hérlendis sem aldrei fyrr, og þá helst til að koma í veg fyrir útafakstur. Slík vegrið hafa engar sérstakar varnir fyrir mótorhjólafólk og eru venjulega sett upp á stöðum þar sem hætta þykir á útafakstri, þá einnig fyrir mótorhjólafólk. Ástæðan fyrir notkun þeirra hérlendis er einföld, en þau minnka snjósöfnun á vetrum. Að vísu er það einnig öryggismál en það er spurning hvort sjónarmiðið vegur þyngra. Einnig hefur verið haldið fram að víravegrið séu ódýrari í uppsetningu en samkvæmt erlendum rannsóknum er viðhald þeirra dýrara sem er fljótt að gera þau jafndýr og hefðbundin vegrið. verið er að gera tilraunir erlendis á undirakstursvörnum fyrir víravegrið en slík vörn krefst þess að hún sé tekin niður á vetrum.

Föstudagur, 18. Nóvember 2011 18:42

Alþjóðlegur minningardagur 20 nóv

Sunnudagurinn 20. nóvember er alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum. Af því tilefni eru að minnsta kosti tvær athafnir skipulagðar, önnur fyrir utan bráðamóttöku Borgarspítalans í Fossvogi, og hefst hún með mínútu þögn kl 11:00. Mun Forseti Íslands leiða þá athöfn og verður sjónunum beint að því fólki sem sinna þarf bráðatilfellum umferðarslysa. Þar verða einnig fulltrúar hinna ýmsu umferðarhópa, meðal annars bifhjólafólks. Um kvöldið, nánar tiltekið kl 20:00 verður haldin umferðarmessa í Digraneskirkju í Kópavogi. Í þessari messu munu koma fram ýmsir sem tengjast umferðinni með ýmsum hætti og þá einnig fulltrúi bifhjólafólks. Þeir munu fara með bænir og annast lestur í messunni. Lögreglukórinn mun syngja ásamt Vox Populi, sem er Gospelkór Grafarvogs. Séra Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur og Snigill mun leiða messuna.

Föstudagur, 11. Nóvember 2011 00:08

Kostir og gallar ABS sem verður senn skylda

Að bremsa mótorhjóli er langt frá því eins einfalt og að bremsa bíl. Rekja má mörg slys til vitlausra viðbragða ökumanna bifhjóla. Flest hjól hafa tvískipt hemlakerfi fyrir fram- og afturhjól sem geta bæði eða sitt í hvoru lagi læst sér við mikla hemlun. Á bíl myndi það þýða skrens en á mótorhjóli gæti það þýtt að hjólið missi jafnvægi sitt, stundum með slæmum afleiðingum. Með ABS hemlalæsikerfi getur ökumaður bremsað af öllum kröftum án þess að eiga á hættu að læsa hjólunum. Kerfið minnkar sjálfkrafa bremsukrafta þegar hjólið er við það að læsa sér, og eykur þá aftur um leið og gripi er náð aftur. Þetta gerist mörgum sinnum á sekúndu þannig að ökumaður hjólsins finnur fyrir lítils háttar titringi í bremsum þegar það gerist en annars ekki. Mótorhjól með ABS hemlalæsikerfi hafa 37% minni líkur á að lenda í dauðaslysum en sömu gerðir af hjólum án ABS, samkvæmt nýjustu rannsóknum. Samkvæmt tölum frá Bandaríkjunum eru tryggingarkröfur frá mótorhjólum með ABS 22% minni en án þess. Samkvæmt prófun frá Austurríki kom líka í ljós að með ABS hemla bæði reyndir og óreyndir ökumenn betur. Allt þetta er gott og blessað á malbiki, jafnvel blautu malbiki með smá sandi eða lausamöl á. Þeir sem hafa hins vegar bremsað hjóli búnu ABS hemlalæsivörn í mikilli lausamöl vita að það kemur of snemma inn, verður of taugaveiklað ef svo má segja og minnkar möguleika ökumannsins að ná aftur stjórn á hjólinu. Í landi þar sem meira en helmingur vegakerfisins er á möl skiptir þetta töluverðu máli. Því þurfa hjól sem ætluð eru til ferðalaga á möl að vera með slökkvara fyrir hemlalæsivörnina ef þau eru með ABS. Þetta er krafa sem Bifhjólasamtök Lýðveldisins settu fram á FEMA fundi 2009 og er nú til skoðunar hjá nefnd ESB um þetta málefni. Þar á bæ stendur til að skylda öll hjól, einnig undir 125 rsm að hafa ABS hemlalæsivörn. Hjólaframleiðendur gera sér grein fyrir þessu vandamáli og eru því að þróa tvívirkar hemlalæsivarnir sem gera fólki kleift að læsa afturdekki á möl en nota ABS að nokkru leyti á framdekkið. Er Husqvarna framleiðandinn meðal annars að prófa svona kerfi í samstarfi við Bosch og BMW. Hægt er að sjá hemlun með og án ABS á mótorhjóli á fyrra myndbandinu hér fyrir neðan. Seinna myndbandið sýnir svo BMW hjól bremsa fyrst með ABS, svo aðeins með afturdekki læstu og loks með læstu afturdekki og hálfu afli á framdekk. Meira að segja aðeins með afturdekki læstu bremsar hjólið betur á mikilli lausamöl en með ABS og í síðustu tilrauninni er vegalengdin hvorki meira né minna en 80% styttri og munar um minna!

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði