Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir stendur fyrir kvikmyndakvöldi miðvikudaginn 23. mars. Sýningin hefst kl. 20:00 í Bíó Paradís (gamli Regnboginn á Hverfisgötu). Miðaverð er 800kr og á staðnum er hægt að kaupa popp, kók og annað nammi. Sýnd verður heimildarmyndinn Dust to glory, en hún segir frá Baja keppninni 2005 og baráttu keppenda við að aka 1000mílur (1600km) á sem skemmstum tíma. Nánari upplýsingar um myndina má sjá á imdb.com (http://www.imdb.com/title/tt0386423/).
Afmælis fundur Slóðavina verður haldinn í Arctic Trucks Kletthálsi 3 kl 20:00 19 janúar.
Ragnar Ólafsson kemur og segir frá ferðalagi um Indland á Royal Einfield bullet. í þremur ferðum ok Ragnar um 25þ. Km og afrekaði m.a. að aka hæsta manngerða fjallveg í heimi, 5600KM. Hæðarveiki, matareitrun og margt fleirra.
Stjórn kynnir starfsárið og nýr bækklingur verður frumsýndur.
Slóðavinir.
Nú eru miklar ferðahelgar framundan sem hefur í för með sér mjög aukna umferð á vegum. á Þessi árstími hefur oft reynst erfiður í umferðinni og má nefna að árið 2006 létust 8 einstaklingar í umferðarslysum í ágúst mánuði einum saman, þar af 5 sem voru 26 ára eða yngri. Mikill árangur hefur náðst í fækkun umferðarslysa á undanförnum árum, en þrátt fyrir það verðum við að halda vöku okkar og ekki missa sjónar á því að aldrei má slaka á í umferðaröryggisstarfinu. Ísland má alls ekki við því að missa fólk í bílslysum. Við verðum að taka höndum saman og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og limlestingar í umferðinni.
Með tilkomu Landeyjarhafnar má gera ráð fyrir aukinni umferð á Suðurlandsvegi, og þá ekki síst ungs fólks á leið til og frá Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina. Stjórn umferðarráðs beinir því sérstaklega til vegfarenda á þessari leið að aka varlega og sýna tillitssemi.
Umferðarráð
Haldin verður mótorhjólamessa á Hólmavik sunnudaginn 20.júní. Dagskráinn nær frá laugardegi fram á sunnudag, en á laugardagskvöldinu verður kvöldvaka með blús og lifandi tónlist á laugardagskvöldinu 19. júní og svo messan daginn eftir á sunnudeginum kl. 14. Bíladagar eru á Akureyri þessa sömu helgi og við vitum að nokkrir mótorhjólaklúbbar ætla að tengja mótorhjólamessuna á Hólmavík við ferðaáætlun sína en halda í bæinn að messu lokinni.
Hópur hjólafólks ætlar að standa fyrir árlegri ferð mótorhjólamanna inn í Landmannalaugar helgina 10 – 12 september 2010 Mæting er á Föstudeginum 10.09 og er ætlunin að grilla, hjóla og skemmta sér í gróðravina hópi fram á sunnudags eftirmiðdag. SUNDFÖT BÖNNUÐ!
Takmarkað pláss er í skála svo við hvetjum ykkur til að skrá ykkur sem fyrst í síma 695-3035 (Hilde)
Vegagerðin er búin að gefa út kort um bundiðslitlag í árslok 2009. Kortið er ágætis stuðningur við að plana hjólatúrana í sumar fyrir þá sem vilja halda sig á malbikinu. Kortið má finna í PDF skjali hér neðar á síðunni, en við hvetjum menn einnig til að kynna sér vef Vegagerðarinna og tilkynningar þeirra um framkvæmdir á vegum landsinna áður en lagt er í lengri túra.
Ferða og útivistarfélagið slóðavinir vekur athygli á félagsfundi sem fram fer 3. mars kl. 20:00 hjá Arctic Trucks, Kletthálsi 3. Öllu áhugafólki um ferðalög til fjalla er boðið að taka þátt.
Dagskrá fundarins er birt í meðfylgjandi auglýsingu (sjá viðhengi), en einnig á vefsvæði félagsins, www.slodavinir.org .
Undanfarnar vikur hefur hörð, óvægin og einsleidd umræða átt sér stað í bloggheimum og fjölmiðlum um umferð vélknúinna ökutækja í náttúru Íslands. Upphafið að þessari umræðu má rekja til erindis Andrésar Arnalds, fagmálastjóra hjá Landgræðslunni, sem flutt var á málstofu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands fyrir nokkru. Í erindinu teiknar Andrés upp dökka mynd af þróun skipulagsmála á Íslandi: Stjórnlausri nýmyndun vegslóða, algjöru aðgerðarleysi stjórnvalda, virðingarleysi ferðaþjónustuaðila við umhverfið, og slæleg vinnubrögð við útgáfu landakorta svo eitthvað sé nefnt. Máli sýnu til stuðnings notar Andrés ljósmyndir og texta sem teknar eru af heimasíðum hjólafólks, jeppafólks, félagasamtaka og ferðaþjónustuaðila. Andrés mun flytja erindi sitt á fundinum.
Andrés hefur náð að hrista vel upp í jeppa-, mótorhjóla- og göngusamfélaginu og án efa mun hann geta hrist upp í fundarfólki á miðvikudaginn líka.
Ómar Ragnason flytur erindi á fundinum og mun án efa ná að hrista upp í fundarfólk líkt og Andrés, en þó vonandi með öðrum formerkjum.
Stjórn félagsins kvetur alla sem áhuga hafa á málefninu að fjölmenna á fundinn.
Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir
Hingað til hefur það bara verið fyrir karlmenn með kúlur að fara Glerárdalsmegin upp á fjallið Kerlingu í Eyjafirði (1538 m) og það á vélsleða.
En það eru til menn með enn stærri kúlur og það svo stórar að þeir drifu sig þessa leið á VÉLHJÓLUM. Þetta voru auðvitað þeir félagarnir Gunnar Hákonarson og Finnur Aðalbjörnsson sem báðir eru komnir vel á fimmtugsaldurinn, aðspurðir sögðu þeir að svona verkefni væri ekki á færi "neinna kettlinga"
Útsýnið af fjallinu er stórkostlegt en meðfylgjandi mynd talar sínu máli.
Fengið af vef www.kka.is
Þriðjudaginn 24. nóvember standa Slóðavinir fyrir myndasýningu, til okkar koma þeir Ingólfur Kolbeinsson og Viggó Már Jensen, en þeir félagar afrekuðu það í sumar að hjóla frá Nýja Sjálandi og alla leið til Íslands, 22.000 kílómetra á fjórum mánuðum. Þeir koma með ferðasöguna og myndir. Myndasýningin verður haldin í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3, og hefst kl. 20:00.
Til að gefa smá innsýn í þetta 4 mánaða ferðalag þeirra félaga þá fóru þeir í gegnum Thailand, Kambódía, Laos, Thailand, Kína (ekki hjólin), Móngólía, Rússland, Úkraína, Móldóvía, Rúmenía, Úngverjaland, Austuríki, Sviss, Frakkland, Þýskaland, Dannmörk og Ísland. Mörg þessara landa eru mjög vanþróuð og töluðu þeir sérstaklega um að vegirnir í Móngólíu hefðu verið svakalegir því í rigningum breyttust þeir í eitt stórt drullusvað. Rússland var það land sem þeim þótti erfiðast og verður gaman að heyra hvers vegna það var.
Vonumst til að sjá sem flesta, Slóðavinir.
|