Sunnudagur, 25. Júlí 2010 22:19

Verslunarmanna -helgin

Skrifað af  Bergur Kristinsson

Nú eru miklar ferðahelgar framundan sem hefur í för með sér mjög aukna umferð á vegum. á Þessi árstími hefur oft reynst erfiður í umferðinni og má nefna að árið 2006 létust 8 einstaklingar í umferðarslysum í ágúst mánuði einum saman, þar af 5 sem voru 26 ára eða yngri. Mikill árangur hefur náðst í fækkun umferðarslysa á undanförnum árum, en þrátt fyrir það verðum við að halda vöku okkar og ekki missa sjónar á því að aldrei má slaka á í umferðaröryggisstarfinu. Ísland má alls ekki við því að missa fólk í bílslysum.  Við verðum að taka höndum saman og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og limlestingar í umferðinni.
Með tilkomu Landeyjarhafnar má gera ráð fyrir aukinni umferð á Suðurlandsvegi, og þá ekki síst ungs fólks á leið til og frá Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina. Stjórn umferðarráðs beinir því sérstaklega til vegfarenda á þessari leið að aka varlega og sýna tillitssemi.

Umferðarráð

Síðast breytt: Sunnudagur, 25. Júlí 2010 22:21
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði