Mánudagur, 28. Júní 2010 23:38

Ertu á leiðinni á Landsmót ?

Skrifað af  Bergur Kristinsson

Sniglar höfðu samband við vegagerðina til að spyrjast fyrir um ástand vega á vestur og norðurlandi með tilliti til ferðar á Landsmót. Eftirfarandi upplýsingar fengust hjá vegagerðinni:

Framkvæmdir hafa verið við veginn á Öxnadalsheiði, en þeim á að vera lokið, verið er að vinna við veginn í Víkurskarði, en hann á að vera orðinn þokkalega fær fyrir helgi. Á Holtavörðuheiði er ný klæðning, sem og á löngum köflum á milli Staðarskála og Blönduós, eitthvað er um viðgerða kafla norðanmegin við Blönduós og í Langadal. Allir þessir kaflar eiga að vera orðnir nokkuð góðir en þó getur verið eitthvað um möl á þeim.

Einnig má benda á að á nokkrum stöðum td í Öxnadal eru viðgerðir síðan í vor þar sem eingöngu hefur verið bætt í hjólfaralínuna, og getur reynst varasamt mótorhjólum.

Vegagerðin biður hjólafólk að fara varlega og óskar okkur góðrar ferðar á Landsmót.

Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði