Bifhjólamenn segjast í stórhættu þegar þeir fara um illa sópuð vegamót. Þeir hvetja Vegagerðina og sveitarfélög að láta hreinsa þau mun oftar en nú er gert.
Á miðjum gatnamótum safnast gjarnan möl oft þríhyrningslaga hauga. Steinar og laust efni sem liggur á hörðu slitlagi skapar mikla hættu sérstaklega fyrir bifhjólamenn. Smári Sigurjónsson, meðlimur í Drekunum, vélhjólaklúbbi Austurlands, segist tvisvar hafa fallið af vélhjóli á illa sópuðum gatnamótum. Hann segir að fjölfarin gatnamót á Fljótsdalshéraði séu sérstaklega slæm og vélhjólamenn sem komi að taki undir það. Hann gagnrýnir verktaka fyrir að moka of mikilli möl á bíla með þeim afleiðingum að hún flæði yfir vegi.
Hér má horfa á viðtal við Smára.
Fréttin er fengin af vef RÚV www.ruv.is
|