Á miðvikudaginn 2 júní kl 20:00 – 23:00 verður haldið skyndihjálparnámskeið þar sem farið verður yfir fyrstu hjálp við aðkomu að bifhjólaslysi. Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur betur undir það búna að takast á við og veita rétta fyrstuhjálp við aðkomu að bifhjólaslysi. Leiðbeinandi er Oddur Eiríksson Slökkviliðsmaður og skyndihjálparkennari. Allir velkomnir.
|