Fimmtudagur, 18. Mars 2010 23:39

Vorið kemur snemma

Skrifað af  Njáll Gunnlaugsson
frá slysaæfingu á vegum Snigla frá slysaæfingu á vegum Snigla Njáll Gunnlaugsson

Kominn fiðringur í þig að fara út að hjóla? Var örugglega búið að hlaða rafgeyminn? Má ekki verða rafmagnslaus niðri á Ingólfstorgi og þurfa að láta ýta mér í gang.
Það er að mörgu að huga þegar vorið kemur snemma eins og í ár og betra að vera viss um að ALLT sé nú í lagi áður en farið er út að hjóla. Það er ekki bara rafgeymirinn sem skiptir máli heldur aðrir mikilvægari hlutir líka. Er nóg loft í dekkjunum sem hafa kannski staðið hreyfingarlaus í marga mánuði? Tékkaðu nú á hvaða loftþrýstingi er mælt með á hlið barðans því að of lítill þrýstingur getur leitt til skaks í hjólinu í beygjum. Er gangurinn góður eða er hann skrykkjóttur og hjólið kannski slæmt í gang? Jettar í blöndungum geta stíflast við geymslu og vatn sest að í bensíntanki svo eitthvað sé nefnt. Smávegis ísvari eða hreinsiefni ætluð mótorhjólum út í bensínið geta gert gæfumuninn. Og svo er það spurningin með ökumanninn. Er hann kannski orðinn dálítið ryðgaður eftir hreyfingarleysi vetrarins? Kannski sniðug hugmynd að skreppa á eitthvert bílaplanið að ná úr sér hrollinum og rifja aðeins upp hvernig bremsan virkar. Að lokum er best að muna eftir veginum sem er kannski ekki upp á sitt besta eftir veturinn. Er ný hola í malbikinu eða sandur í beygjunni? Það er líka meira ryk á götunum og minna grip svo ekki sé minnst á hvítu línurnar. Að mörgu er að huga en það sem er mikilvægast er að muna að sletta nú ekki um of úr klaufunum eins og belja að vori með halann upp í loftið. Rúnturinn endar heima!

Síðast breytt: Föstudagur, 19. Mars 2010 09:03
Njáll Gunnlaugsson

Njáll Gunnlaugsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði