Ný herferð gegn slysum á ungum ökumönnum mótorhjóla er nýhafin í Kent í Bretlandi. Herferðin kallast "Draugahjálmurinn" og sýnir draugalegan, hvítan hjálm nálægt þekktum slysastöðum mótorhjóla. Herferðin var sett í gang eftir röð 18 alvarlegra slysa á 50-125 rsm mótorhjólum á aðeins fimm ára tímabili. "Herferðin á að sýna ungu hjólafólki fram á hversu dramatísk áhrif það getur haft að lenda í mótorhjólaslysi" segir Tom Morton mótorhjólafulltrúi hjá umferðastofunni í Kent. Meiri upplýsingar um herferðina má sjá á www.ghostlids.co.uk



