Í vetur er búin að vera í gangi könnun á vefsvæðinu hjolafolk.is um sýnileika þeirra forvarna sem birtust okkur hjólafólki síðastliðið vor. Könnunin er unnin fyrir Snigla og er ætlað að varpa ljósi á hvernig best er að ná til þeirra hópa sem umferðarátök beinast að. Tveir aðilar keyrðu fravarnir en það voru Sniglar og umferðarstofa. Í könnuninni tóku þátt tæplega hundrað einstaklingar. Spurt var um hversu sýnilegar forvarnir voru almennt, hversu vel viðkomandi tók eftir forvarna átaki Snigla og umferðarstofu. Einnig var spurt um þann markhóp sem beina ætti forvörnum að og hvernig ætti að ná til hans.
1. Hversu vel tókstu almennt eftir forvarna átökum í vor og sumar ?
Almenn eftirtekt á umferðarátökum virðist hafa verið nokkuð góð síðastliðið sumar. En nánast allir þáttakendur í könnuninni urðu átakkanna varir á einhvern hátt.

2. Hversu vel tókst þú eftir forvarnarátaki Umferðarstofu ?
Umferðarstofa keyrði umferarátak byggt á sjónvarpsauglýsingu og vefborðum sem byrtir voru á fréttamiðlum, heimasíðu umferðarstofu og einhverra klúbba. Sjónvarpsauglýsing og vefborðar umferðarstofu byggðu á „Líttu tvisvar“ slagorðinu.

3. Hversu vel tókst þú eftir forvarnarátaki Snigla ?
Sniglar keyrðu „Ertu Nagli“ átakið sem byggði á raunverulegri röntgenmynd af hjólamanni eftir umferðarslys. Slagorðið „Hraði er dauðans alvara“ var undirskrift Naglans sem birtist á strætó fyrripart sumars, í kvikmyndahúsum og á vefborðum á vefjum nokkurra mótorhjólaklúbba.

4. Hver finnst þér að eigi að vera markhópur þeirra sem leggja í forvarnarátök ?
Yfirgnæfandi meirihluti þáttakenda í könnuninni er á því að umferðarátökum akstur mótorhjóla í umferð eigi að beinast jafnt á ökumenn mótorhjóla og bifreiða í umferðinni. Báðir aðilar þurfa að sína hvor öðrum tillitsemi og vera vakandi hvor fyrir öðrum.

5. Að þínu mati, hvar virkar best að birta forvarnarátök ?
Hér var gefinn kostur á að merkja við eitt eða fleiri atriði og virðist sjónvarp vera sá miðill sem flestir taka eftir, þetta endurspeglast líka í því að mun fleiri tóku eftir umferðarátaki Umferðarstofu sem keyrt var að mestu í sjónvarpi. Fast á eftir sjónvarpi eru vefmiðlarnir og þar með taldir vefir mótorhjólaklúbbanna. Það er því umhugsunar efni með hvort klúbbarnir í landinu ættu ekki að taka sig saman og keyra samstillt átak á vefjum sínum á komandi sumri.

6. Værir þú tilbúin/n til að merkja bílinn þinn umferðarátaki á einn eða annan hátt, t.d. með límmiða í rúðu ef leitað væri til þin með það ?
Yfirgnæfandi meirihluti þáttakenda í könnuninni er tilbúinn til að merkja bíl með t.d. límiða í afturrúðu. Þess má geta að Sniglar eru að láta útbúa límiða fyrir afturrúður bíla með umferðarátaki og verða upplýsingar um hvernig hægt verður að nálgast þá byrtar á heimasíðu Snigla www.sniglar.is




