Vegalögreglan í Kaliforníufylki hefur blásið til umferðarátaks fyrir mótorhjól sem óhætt er að segja að tekið verði eftir. Skilaboðin eru “Share the Road, Look Twice for Motorcyclists” sem útleggst; Deilum veginum, líttu tvisvar eftir mótorhjólum. Skilaboðin verða á yfir 700 skiltum víðsvegar um fylkið. Robert Gladden, framkvæmdarstjóri Motorcycle Safety Foundation er mjög ánægður með framtakið. “MSF og þúsundir mótorhjólafólks taka ofan fyrir Vegalögrelunni og Umferðarstofu Kaliforníufylkis fyrir að viðurkenna að öryggi mótorhjólafólks er mikilvægt.” Áætlað er að allt að 250.000 bílar sjái hvert skilti á degi hverjum.
|